Back to results

Bifröst University

Ábyrgðaryfirlýsingar í fyrirtækjakaupum : hvaða áhrif hafa ítarlegar ábyrgðaryfirlýsingar á réttindi og skyldur kaupenda og seljenda fyrirtækja samkvæmt lausafjárkaupalögunum?

Abstract

dc:description.abstract

Sú þróun hefur átt sér stað almennt við gerð samninga í tengslum við kaup á fyrirtækjum að samningar eru hafðir mjög ítarlegir í þeim tilgangi að reyna að koma í veg fyrir að skilin séu eftir óumsamin atriði. Þeir eru gerðir að fyrirmynd samninga úr common law réttarkerfum. Á Norðurlöndum byggja dómstólar á heimild sinni til túlkunar ólíkt því sem gildir í common law réttarkerfum þar sem dómstólar túlka samninga samkvæmt orðanna hljóðan. Við túlkun á samningum hér á landi er því hætt við að litið sé til fleiri atriða en þeirra sem koma fram berum orðum í samningum, svo sem sanngirni, stöðu samningsaðila og lágmarksreglna lausafjárkaupalaga þrátt fyrir að samningar og ábyrgðaryfirlýsingar þeirra séu mjög ítarlegar. Hyggst höfundur því kanna hvaða áhrif ítarlegar ábyrgðaryfirlýsingar kunna að hafa hér á landi og hvort þær auki eða skerði réttindi aðila með hliðsjón af gildandi réttarreglum í þeim tilvikum þegar ágreiningsefni vegna samnings er lagt fyrir dómstól til úrlausnar. Ljóst er að ítarlegar ábyrgðaryfirlýsingar geta breytt réttindum og skyldum aðila skv. lausafjárkaupalögunum og verða aðilar að vera meðvitaðir um hvaða ákvæði laganna þeir kunna að útiloka með samningi sínum. Það er hins vegar ekki algengt að þess konar ágreiningur sé lagður fyrir dómstóla og aðilar virðast fremur reyna að útkljá ágreiningsefni sín á milli. Telur höfundur það geta stafað af þeirri óvissu sem ríkir um túlkun dómstóla á samningsákvæðum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Inga Kristín Kjartansdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22037
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22037

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Inga Kristín Kjartansdóttir 1984-. Ábyrgðaryfirlýsingar í fyrirtækjakaupum : hvaða áhrif hafa ítarlegar ábyrgðaryfirlýsingar á réttindi og skyldur kaupenda og seljenda fyrirtækja samkvæmt lausafjárkaupalögunum?. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22037