Back to results

Bifröst University

Íslenska óperan : aurar og eldsálir

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur þessarar meistaraprófsritgerðar er að rannsaka Íslensku óperuna. Í því felst að stikla á stóru í sögu hennar, skoða stefnu hennar, það fjármagn sem ríkið leggur til hennar og þær breytingar sem orðið hafa við flutning hennar í Hörpu. Einnig er fjallað um málþing sem haldið var 2014 um framtíð óperuflutnings á Íslandi. Tekin voru viðtöl við fyrrverandi og núverandi óperustjóra, framlög frá ríkinu skoðuð og rýnt í Óperublaðið og blaðagreinar sem skrifaðar hafa verið um Íslensku óperuna. Markmiðið er að varpa ljósi á stöðu Íslensku óperunnar í samfélaginu sem vonandi verður til þess að efla hana og styrkja til framtíðar. Helstu niðurstöður eru þær að fjármagn það sem Óperunni er ætlað er ekki nægilegt miðað við þau markmið sem skilgreind eru í samningi við mennta- og menningarmálaráðuneyti og of hátt hlutfall úthlutaðs fjármagns fer beint í húsaleigu í Hörpu. Eftir flutningana í Hörpu er ekki tap á hverju sýningarkvöldi eins og var í Gamla bíói en betur má ef duga skal. Forskrifuð stefna Íslensku óperunnar í tengslum við samþykktir og samning við mennta- og menningarmálaráðuneytið er í hættu vegna fjárskorts. Rannsakandi telur styrkleikana þó fleiri en veikleikana og er bjartsýnn á framtíð Íslensku óperunnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elma Atladóttir 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22035
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22035

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elma Atladóttir 1970-. Íslenska óperan : aurar og eldsálir. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22035