Back to results

Bifröst University

Hátíðavæðing lista : af fjölgun hátíða í Reykjavík

Abstract

dc:description.abstract

Lista- og menningarhátíðum hefur fjölgað gríðarlega um land allt á undanförnum árum og ekki síst í Reykjavík. Markmiðið með þessari rannsókn er að sýna með óyggjandi hætti fram á fjölgun lista- og menningarhátíða í Reykjavík á árunum 2003 til 2014 og greina helstu ástæður að baki fjölguninni. Stofnun Höfuðborgarstofu árið 2003 og stofnun Borgarhátíðasjóðs níu árum síðar markar skýra stefnu borgaryfirvalda í ímyndar¬uppbyggingu Reykjavíkur í gegnum hátíðir. Fjölgun menningarverkefna sem nefna sig hátíðir má einnig sjá í úthlutunum árlegra styrkja Menningar- og ferðamálaráðs til menningarstarfsemi og listverkefna og vitnar það einnig um áherslu á viðlíka verkefni. Ástæður þess má að hluta til rekja til verkefnavæðingar með innleiðingu nýsköpunar í opinberum rekstri en einnig má rekja þessa aukningu til átaks í ferðamálum til að auka ferðamannastraum utan háannatíma og einfaldlega að markaðssetja Reykjavík sem kraumandi menningarborg, iðandi af lífi. Aðsóknartölur eru yfirleitt notaðar sem opinber mælikvarði á árangur og hafa þær hátíðir sem Reykjavíkurborg stendur að undantekningalítið heppnast vel og aðsókn aukist ár frá ári. Svo virðist sem vel heppnaðar hátíðir smiti út frá sér og mögulega hefur velgengni stærstu hátíðanna orðið til þess að aðrar hátíðir spretta upp í kjölfarið og í kring. Hátíðir eru ennfremur mikilvægur sýningar-vettvangur fyrir starfandi listamenn og svo virðist sem fjármögnun gangi betur og kynningarstarf sé auðveldara viðfangs ef listamenn sameinast undir hátíðarnafni í stað þess að standa að sjálfstæðum listviðburðum. Á hinn bóginn má spyrja hvort áherslan á hátíðir hafi áhrif á framboð eða eftirspurn eftir sjálfstæðum listviðburðum og má telja líklegt að svo sé. Þó aðsókn skipti hátíðir gríðarmiklu máli þá virðast áherslur hátíða vera að breytast frá áherslu á síaukinn áhorfendafjölda til áherslna á alhliða faglegt starf í öllum þáttum hátíðahaldsins – framkvæmd, markaðsetningu og innihald.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Valgerður Guðrún Halldórsdóttir 1965-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22034
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22034

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Valgerður Guðrún Halldórsdóttir 1965-. Hátíðavæðing lista : af fjölgun hátíða í Reykjavík. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22034