Back to results

Bifröst University

Við sem heima sitjum : taka konur síður þátt en karlar í umræðunni um Evrópusambandið og Ísland? Innihaldsgreining á fjölmiðlaumfjöllun 2009

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur þessarar rannsóknar er að kanna hvort konur taki síður þátt en karlar í umræðunni um Evrópusambandið og Ísland. Skoðaðir voru helstu prentmiðlar og helstu útvarpstöðvar landsins árið 2009. Þau voru: Morgunblaðið, Fréttablaðið, DV, Viðskiptablaðið, Bylgjan, Rás 2 og Rás1. Byrjað var á að finna allar fréttir og fréttatengt efni sem innihélt umræðu um Evrópusambandið og Ísland. Innihaldsgreining var notuð til þess að kynjaskipta efninu og var það flokkað eftir því hvort kynin voru viðmælendur í frétt eða viðtali, eða höfundar að efni. Efnið var greint eftir því hvort um var að ræða frétt, pistil eða aðsenda grein, viðtöl eða fréttaskýringar. Síðan var það flokkað eftir kyni viðmælanda eða höfundar. Auk þess var öllu efni skipt niður í efnisflokka. Sagt var frá öðrum fjölmiðlarannsóknum sem voru samanburðahæfar við niðurstöður þessarar rannsóknar. Meginniðurstaðan er sú að konur fjalla í mun minna mæli en karlar um Evrópusambandið og Ísland. Um 80% karla eru viðmælendur í fréttum eða höfundar að efni og er hlutur kvenna einungis um 14%. Það er alveg sama hvaða þættir eru dregnir út úr niðurstöðunum, hlutur kvenna er alltaf minni en karla. Þegar búið var að skipta niður í efnisflokka kom í ljós að í ákveðnum málaflokkum innan Evrópuumræðunnar taka konur lítinn eða engan þátt, í sjávarútvegsumræðunni voru einungis tvær konur sem voru viðmælendur eða höfundar að efni, eða um 3% af 66 efnisgreinum. Konur skrifuðu færri pistla og aðsendar greinar. Rannsóknir á kynjaskiptingu í fjölmiðlum sýna að konur eru um það bil þriðjungur þeirra sem rætt er við, fjallað er um eða semja eða flytja efni. Alþjóðleg fjölmiðlavöktun GMMP segir að konur séu viðmælendur frétta í 28% tilfella, en þær skrifi fréttir í 33% tilfella, sem er töluvert hærra hlutfall heldur en innan umræðunnar um Evrópusambandið og Ísland. Þessar niðurstöður sýna engu að síður fram á það að konur eru töluvert minna í fjölmiðlum heldur en karlar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Lovísa H. Larsen 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22033
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22033

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Lovísa H. Larsen 1979-. Við sem heima sitjum : taka konur síður þátt en karlar í umræðunni um Evrópusambandið og Ísland? Innihaldsgreining á fjölmiðlaumfjöllun 2009. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22033