Back to results

Bifröst University

Heiðurslaun listamanna : fortíð, fyrirkomulag og framtíð

Abstract

dc:description.abstract

Heiðurslaun listamanna eru veitt af Alþingi Íslendinga en við afgreiðslu fjárlaga hvers árs er ákveðið hvort að nýir listamenn bætast í hópinn. Í þessari rannsókn er saga heiðurslaunanna skoðuð og mat lagt á hvaða sess launin hafa í menningarstefnu íslenska ríkisins. Vel má halda því fram að launin séu veigalítill og heldur afskiptur hluti stefnunnar, þegar hún er skilgreind sem heildarumsvif ríkisins í menningarmálum. Saga heiðurslaunanna sýnir líka ákveðinn vandræðagang sem hefur einkennt beinan stuðning þingsins við störf listamanna. Sá stuðningur byggðist lengi vel fyrst og fremst á hefðum, en lagaákvæði er varðaði heiðurslaunin kom ekki til fyrr en með lögum um listamannalaun árið 1967 og sérstök lög um heiðurslaunin voru loksins samþykkt árið 2012. Auk þess að fjalla um sögu heiðurslauna og aðferðir Alþingis við að útdeila þeim, er í rannsókninni einnig grafist fyrir um áþekk dæmi á Norðurlöndum. Þaðan eru líka tiltekin dæmi af akademíum sem þar eru starfræktar og fjallað um hugmyndir, nýjar og gamlar, um stofnun akademíu hér á landi. Þá er ennfremur rætt um ímynd heiðurslauna og hugmyndir valdhafa um tilgang þeirra þar sem tekist hafa á hugmyndir um heiður, styrki og eftirlaun. Markmiðin með heiðurslaunum hafa þannig verið óskýr og því hafa heiðurslaunin staðið á mörkum menningarstefnu og velferðarmála. Við alla umfjöllun um heiðurslaunin verður að hafa í huga hugmyndir stjórnmálamanna um gildi listanna fyrir samfélagið þegar kemur að þjóðarvitund og sjálfsmynd þjóðarinnar en þær hugmyndir setja þeir fram reglulega í ræðu og riti. Í viðaukum er tekinn saman listi yfir heiðurslistamenn og tölulegt efni um þá allt frá árinu 1945, þó svo að rætur þessarar hefðar liggi lengra aftur í sögu Alþingis.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðni Tómasson 1976-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/20560
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/20560

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðni Tómasson 1976-. Heiðurslaun listamanna : fortíð, fyrirkomulag og framtíð. 2015. http://hdl.handle.net/1946/20560