Back to results

Bifröst University

Milliverðlagning : milliverðlagsreglur 57. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt.

Abstract

dc:description.abstract

Lengi hefur verið talið að milliverðlagsreglur skattaréttar hafi skort skýrleika og valdi þar með réttaróöryggi. Við milliverðlagningu skal skattleggja verðmæti þar sem þau verða til. Séu milliverðlagsreglur ekki nægjanlega skýrar geta skatttekjur ríkis tapast eða jafnvel endað hjá öðru ríki ef viðskiptin áttu sér stað á alþjóða vettvangi. Milli tengdra aðila eru meiri líkur á óvenjulegum skiptum þar sem reynt er að koma fram skattahagræði. Nýverið voru lögleidd á Íslandi milliverðlagsákvæði með lögum 142/2013 um breytingu á tekjuskattslögum 90/2003. Nú ber því skattyfirvöldum og dómstólum að líta til þessara nýju reglna sem byggjast á leiðbeinandi reglum OECD um milliverðlagningu. Hefur breyting þessi í för með sér að meira samræmi skapast á bæði innlendum og erlendum markaði sem stuðlar þar með að auknu jafnræði milli aðila í sambærilegum viðskiptum. Skoðaðar voru nýjar milliverðlagsreglur og þann tilgang sem þeim ber að hafa á viðskipti tengdra aðila. Með skýrari lagaákvæðum er réttaröryggi aðila aukið til muna þar sem gegnsæi milliverðlagningar eykst og er nú í samræmi við erlend lagaákvæði. Auðveldara verður þar með að ákvarða skattstofn er tengist milliverðlagningu fyrir tilstilli þeirra aðferða sem milliverðlagning byggist á.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ragnheiður Ásta Birgisdóttir 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/20553
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/20553

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ragnheiður Ásta Birgisdóttir 1983-. Milliverðlagning : milliverðlagsreglur 57. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt.. 2015. http://hdl.handle.net/1946/20553