Back to results

Bifröst University

Snjallsímanotkun á Íslandi : með hvaða hætti nota Íslendingar snjallsíma til kaupa á vöru og þjónustu?

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi, sem fjallar um snjallsímanotkun á Íslandi, er gerð í þeim tilgangi að skoða með hvaða hætti íslenskir neytendur nota snjallsíma til kaupa á vöru og/eða þjónustu. Þær miklu tækninýjungar sem hafa komið í kjölfar snjallsíma hafa veitt neytendum aukinn aðgang og þægindi í kaupferlinu. Mikið magn af upplýsingum er aðgengilegt á netinu og hafa því boðleiðir upplýsinga styst. Þetta hefur gert það að verkum að ákvörðunarferlið, þegar kemur að verslun á vörum og/eða þjónustu, hefur auðveldast til muna. Að fyrirtæki miðli upplýsingum áfram í gegnum gagnvirka miðla skiptir snjallsímaeigendur máli, þar sem þeir ganga um með færanlega tölvu á sér, sem passar í nánast hvaða vasa sem er. Helstu niðurstöður eru þær að neytendur nota snjallsíma mikið í kaupferlinu og þá aðallega á öðru stigi þess, sem er upplýsingaleit. Þeim þykir snjallsíminn góð leið til að skoða þær upplýsingar sem verslanir veita um vörur sínar og/eða þjónustu og upplifun þeirra er það góð að þeir geta mælt með þessari leið við aðra einstaklinga. Niðurstöðurnar gefa vísbendingar um margt sem væri áhugavert að skoða með frekari rannsóknum. Einnig geta þær haft hagnýtt gildi fyrir eigendur fyrirtækja sem vilja auka markaðs- og sölugildi þjónustu sinnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Bertha Kristín Óskarsdóttir 1977-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/17485
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/17485

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Bertha Kristín Óskarsdóttir 1977-. Snjallsímanotkun á Íslandi : með hvaða hætti nota Íslendingar snjallsíma til kaupa á vöru og þjónustu?. 2014. http://hdl.handle.net/1946/17485