Back to results

Bifröst University

Fyrir hvern er hátíð sem enginn sækir? : tillögur varðandi framtíð Jasshátíðar Egilsstaða á Austurlandi

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar ritgerðar var að rannsaka markmið, áhrif og framkvæmd Jasshátíðar Egilsstaða á Austurlandi og greina hvernig hún stendur samanborið við aðrar íslenskar tónlistarhátíðir á samkeppnismarkaði. Undanfarin ár virðist hátíðin hafa vakið takmarkaðan áhuga meðal landsmanna og aðsókn að henni hefur verið lítil. Markmið rannsóknarinnar var að leita skýringa á þessu slæma gengi undanfarinna ára og leiða í ljós hvort hagkvæmt sé að viðhalda starfsemi Jasshátíðar áfram, og þá með hvaða hætti. Til grundvallar var framkvæmd tilviksrannsókn þar sem ýmsum gögnum tengdum Jasshátíð Egilsstaða á Austurlandi var safnað saman til greiningar. Sú greining var borin saman við fræðilegan grunn viðburðastjórnunar og ýmsar óháðar rannsóknir á Íslandi sem og erlendis. Samanburður og túlkun á gögnum rannsóknarinnar leiddi í ljós að núverandi ástand hátíðarinnar uppfyllir vissar kröfur sem til hennar eru gerðar. Hátíðin hefur alla tíð unnið að því að efla grasrót tónlistarmenningar Austurlands og það hlutverk samræmist áherslum menningarstefnu fjórðungsins. Það er óvíst hvað framtíð Jasshátíðar ber í skauti sér en eins og þessi rannsókn leiðir í ljós eru mörg ónýtt tækifæri varðandi kynningu, markaðssetningu og stefnumótun sem ekki hefur verið reynt á.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Eva Björk Káradóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/17464
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/17464

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Eva Björk Káradóttir 1986-. Fyrir hvern er hátíð sem enginn sækir? : tillögur varðandi framtíð Jasshátíðar Egilsstaða á Austurlandi. 2014. http://hdl.handle.net/1946/17464