Back to results

Bifröst University

Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús : upplifun og viðhorf tónlistarmanna sem fram hafa komið í húsinu

Abstract

dc:description.abstract

Markmiðið með framkvæmd þessarar rannsóknar var að kanna hver viðhorf og upplifun tónlistarmanna væri af tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu. Rannsóknin var framkvæmd á þann hátt að tekin voru viðtöl við átta tónlistarmenn sem áttu það sameiginlegt að hafa komið fram í Eldborg, aðaltónleikasal Hörpu. Markmið rannsóknarinnar var að komast að því hvernig tónlistarmennirnir upplifðu Hörpu eftir að hafa kynnst henni í gegn um vinnu sína í húsinu. Bygging Hörpu var mjög umdeild og því er mikilvægt að kanna hvort þeir sem koma fram í húsinu eru ánægðir með húsið. Ef tónlistarmenn eru ekki ánægðir með Hörpu getur það haft neikvæð áhrif á aðsókn tónlistarmanna í Hörpu. Í fræðikafla rannsóknarinnar verður farið yfir fyrri rannsóknir sem snúa meðal annars hversu mikilvægt það sé fyrir starf þeirra að tónleikasalirnir sem þeir koma fram í búi yfir góðum hljómburði. Jafnframt er fjallað um tónlistaráhuga eftir hópum. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á að þátttakendurnir voru mjög ánægðir með Hörpu. Þeir telja að Harpa sé mikilvægur þáttur í eflingu tónlistar- og menningarlífs í Reykjavík sem felst meðal annars í aukningu á tónleikum eftir að Harpa var tekin í notkun. Þeir voru ánægðir með hljómburðinn í húsinu og það hversu vel starfsfólk Hörpu sinnti starfi sínu. Upplifun þeirra af því að standa á sviðinu í Eldborg og koma fram þar er að sögn þeirra stórkostleg. Hún er allt öðruvísi en upplifun af öðrum stöðum sem þeir hafa komið fram á hér á landi. Þrátt fyrir að þátttakendur hafi verið ánægðir með Hörpu, þá komu fram athugasemdir um miklar vegalengdir baksviðs, ásamt kvörtunum um bílastæðamál. Þátttakendur telja að allar tegundir tónlistar hafi aðgang að húsinu en það sem standi helst í vegi fyrir því að ungir tónlistarmenn geti haldið tónleika í Hörpu sé afar há leiga fyrir aðstöðuna í Hörpu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðrún Hilmarsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/17462
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/17462

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðrún Hilmarsdóttir 1986-. Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús : upplifun og viðhorf tónlistarmanna sem fram hafa komið í húsinu. 2014. http://hdl.handle.net/1946/17462