Back to results

Bifröst University

Samanburður á verðtryggðum og óverðtryggðum húsnæðislánum : "Þegar tekið er húsnæðislán í dag, hvort er hagkvæmara að taka verðtryggt lán eða óverðtryggt?"

Abstract

dc:description.abstract

Í ritgerð þessari er farið yfir samanburð á verðtryggðum og óverðtryggðum húsnæðislánum og þá þætti sem koma til með að hafa áhrif á lántakandann hvað lán eru valin. Að mörgu er að hyggja þegar ákvörðun er tekin um hvers konar lán til húsnæðiskaupa sé hagstæðast. Í þessari ritgerð geri ég grein fyrir stjórnun peningamála á Íslandi og þróun verðbólgu ásamt því að skoða notkun verðtryggingar á Íslandi auk þess sem fræðilegir þættir verðtryggingar eru teknir fyrir. Verðtrygging húsnæðislána hefur sætt gagnrýni að undanförnu, sérstaklega í kjölfar hrunsins 2008. Annars vegar beinist gagnrýnin að mikilli hækkun skulda heimilanna og hins vegar eru sumir þeirrar skoðunar að verðtrygging húsnæðislána dragi úr virkni peningastefnunnar. Ég geri grein fyrir lánaframboði húsnæðislána og fjalla á eins hlutlausan hátt og mér er unnt um kosti og ókosti þessara lána. Hin ýmsu form lána eru kynnt og að lokum kynntur útreikningur þar sem lánin eru borin saman. Ályktanir mínar eru dregnar saman í niðurstöðukafla í lok ritgerðarinnar. Í gegnum tíðina hefur sú aðferð að verðtryggja lán til húsnæðiskaupa sætt mikilli gagnrýni og af og til hafa komið fram tillögur á Alþingi um að afnema verðtrygginguna að fullu. Það er því afar mikilvægt að almenningur geri sér grein fyrir í hverju mismunur verðtryggðra og óverðtryggðra lána felst og viti að áhættan við lántöku er mismunandi eftir því hvers konar lán er tekið. Þessi ritgerð er innlegg í þá umræðu og svar við eftirfarandi rannsóknarspurningu: „Þegar tekið er húsnæðislán í dag, hvort er hagkvæmara að taka verðtryggt lán eða óverðtryggt?“

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Anna María Sigurðardóttir 1966-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16860
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16860

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Anna María Sigurðardóttir 1966-. Samanburður á verðtryggðum og óverðtryggðum húsnæðislánum : "Þegar tekið er húsnæðislán í dag, hvort er hagkvæmara að taka verðtryggt lán eða óverðtryggt?". 2013. http://hdl.handle.net/1946/16860