Abstract
dc:description.abstractMegnimarkmið rannsóknarinnar var að kanna viðhorf íbúa Skagafjarðar varðandi hestamennsku og hvernig þeir hafa upplifað samskipti meðal hestamanna fyrr og nú. Ímynd Skagafjarðar hefur verið samofin hestamennsku og þar hafa fjölmargir góðhestar átt rætur sínar. Leitast var við að kanna félagsauð meðal hestamanna, menningu og skilgreiningu á hópum. Í ljós kom að félagsauður er að taka stakkaskiptum; hið nána samfélag sem var, þar sem menn gátu leitað hver til annars, er aðeins til staðar innan fjölskyldna og fólk er farið að kaupa þjónustu sem áður var fengin með samhjálp. Litið er til tísku og viðhorfa til mannfagnaða ýmiskonar. Hestakaup og verslun var skoðuð og kom í ljós að hestakaup eru lítið stunduð núna miðað við áður og almennt fara öll viðskipti fram gegn gjaldi. Bankahrunið hafði mikil áhrif á verslun með hesta og hefur ekki enn sem komið er náð að rétta úr kútnum. Rannsóknin er byggð á grundaðri kenningu með eigindlegri aðferð. Í rannsóknina voru fengnir átta aðilar til samstarfs og tekin við þá viðtöl. Þau voru þemagreind og voru fyrirferðarmest félagsleg samskipti, minningar, viðburðir ýmiskonar, traust, tíska og virði. Aldursdreifing viðmælenda var átján ára til áttatíu og eins árs. Allir eiga það sameiginlegt að vera með og/eða eiga hesta, ásamt því að eiga rætur og búa í Skagafirði. Í rannsókninni er litið á Skagafjörð sem eina heild þó þar séu tvö sveitarfélög.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ástríður Sigurðardóttir 1962-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/16118
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/16118