Back to results

Bifröst University

Hæfisskilyrði framkvæmdastjóra og stjórnarmanna eftirlitsskyldra fjármálafyrirtækja skv. 52. gr.laga nr. 161/2002

Abstract

dc:description.abstract

Eftirlit á starfsemi á fjármálamarkaði er mikilvægur partur af öruggu fjármálaumhverfi. Fjármálaeftirlitið sér um slíkt eftirlit að stærstum hluta hér á Íslandi. Sækir það heimildir í lög nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Eitt af eftirlitsverkefnum Fjármálaeftirlitsins er að ganga úr skugga um að framkvæmdastjórar og stjórnarmenn fjármálafyrirtækja séu starfi sínu vaxnir. Var því árið 2005 sett á fót hæfismat framkvæmdarstjóra og stjórnarmanna eftirlitsskyldra fjármálafyrirtækja. Byggir það að mestu á 52. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Sú grein hefur tekið miklum breytingum frá setningu þeirra. Sú viðamesta var árið 2010 þar sem umfang greinarinnar var aukið til muna. Nauðsynlegt þótti að virkja hæfismatið til hins ýtrasta eftir hrun íslenska fjármálakerfisins þar sem við rannsóknir á ástæðum þess kom í ljós að hæfi framkvæmdarstjóra og stjórnarmanna fjármálafyrirtækja á Íslandi væri virkilega ábótavant. Í þessari ritgerð verður fjallað um hver hæfisskilyrði framkvæmdarstjóra og stjórnarmanna í eftirlitsskyldum fjármálafyrirtækjum eru, hvernig hæfismat fer fram, hverjar breytingarnar hafa verið frá setningu laga nr. 161/2000 um fjármálafyrirtæki og hvernig framkvæmd þessa hæfismats hefur gengið. Gerð er grein fyrir helstu réttarheimildum og lögskýringarsjónarmiðum sem gilda um hæfismat Fjármálaeftirlitsins auk þess sem litið er til áhrifa þess.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristján Örvar Sveinsson 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/14115
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/14115

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristján Örvar Sveinsson 1986-. Hæfisskilyrði framkvæmdastjóra og stjórnarmanna eftirlitsskyldra fjármálafyrirtækja skv. 52. gr.laga nr. 161/2002. 2013. http://hdl.handle.net/1946/14115