Back to results

Bifröst University

Strandveiðar í ljósi álits mannréttindanefndar SÞ nr. 1306/2004 um íslenska kvótakerfið : „Allir menn eigu at veiða fyrir utan netlög at ósekju.“

Abstract

dc:description.abstract

Í greinargerð þessari er leitast við að svara því að hve miklu leyti þær breytingar sem íslensk stjórnvöld gerðu á lögum um stjórn fiskveiða með upptöku strandveiða vorið 2009 hafi komið til móts við álit mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna nr. 1306/2004. Jafnframt eru fjallað um þær aðgerðir sem íslensk stjórnvöld hafa þegar komið í framkvæmd eða hyggjast koma í framkvæmd til að bregðast við álitinu. Til að varpa ljósi á viðfangsefnið er einnig reifaðir nokkrir Hæstaréttardómar um stjórnskipulegt gildi þeirra ákvæða laga um stjórn fiskveiða sem mesti ágreiningur hefur verið um í þjóðfélaginu undanfarna áratugi. Fjallað er um þau mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar sem mestu skipta varðandi umfjöllunarefnið, þ.e. jafnræðisregluna og atvinnufrelsisákvæðið. Álit mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna er síðan rakið ítarlega. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru að íslensk stjórnvöld hafa enn sem komið er ekki komið til móts við niðurstöðu mannréttindanefndarinnar nema að takmörkuðu leyti með upptöku strandveiða. Jafnfamt er vandséð að markmiðum stjórnvalda um „að gæta atvinnufrelsis og að tryggja að jafnræðis verði gætt við úthlutun afnotaréttarins og aðgengi að hinni sameiginlegu auðlind“ verði náð með nýju frumvarpi til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða, nema að takmörkuðu leyti, að mati höfundar. Það er einnig mat höfundar að íslenska ríkinu beri að taka álit mannréttindanefndar SÞ alvarlega eins og aðrar alþjóðlegar skuldbindingar sínar og gera þær ráðstafanir sem þarf til að fylgja eftir skoðunum nefndarinnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Einar Pálsson 1955-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/14109
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/14109

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Einar Pálsson 1955-. Strandveiðar í ljósi álits mannréttindanefndar SÞ nr. 1306/2004 um íslenska kvótakerfið : „Allir menn eigu at veiða fyrir utan netlög at ósekju.“. 2013. http://hdl.handle.net/1946/14109