Back to results

Bifröst University

Herferðir hjálparsamtaka og mannréttindahreyfinga á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð verður leitast við að svara þeirri spurningu hver hugmyndafræðin sé á bak við herferðir hjálparsamtaka á Íslandi. Í upphafi er stuttlega fjallað um kenningar fræðimanna um heimshyggju (e.cosmopolitanism) og einnig kenningu Roland Barthes um ,,punctum“ og ,,studium“ áhrif ljósmynda. Tekin voru viðtöl við aðila frá fimm mismunandi hjálparsamtökum og mannréttindahreyfingum er starfa á Íslandi. Niðurstöður viðtalanna eru síðan greind út frá kenningunum. Farið er yfir aðferðafræði samtakanna við skipulagningu herferða og einnig aðferðafræði við val á myndum og hvað samtökunum finnst hafa áhrif á almenning. Helstu niðurstöður eru þær að hjálparsamtök og mannréttindahreyfingar vinni út frá heimshyggju, það er vinni út frá því að styrkja heimssamfélagið og sjá siðferðilega skyldu þeirra við að aðstoða þá sem hana vantar. Samtökin nota öll persónulega nálgun til þess að ná til almennings og myndir sem sýna aðstæður, án þess að vanvirða þá sem teknar eru myndir af. Þau reyna að kalla fram punctum áhrif hjá almenningi, það er áhrif sem snertir hann og gerir það að verkum að hann vilji leggja málstaðnum lið.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Lilja Ósk Diðriksdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/14100
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/14100

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Lilja Ósk Diðriksdóttir 1989-. Herferðir hjálparsamtaka og mannréttindahreyfinga á Íslandi. 2013. http://hdl.handle.net/1946/14100