Global ETD Search
Search theses and dissertations gathered from participating repositories worldwide. Every result links back to the library that holds it. No account is needed.
Results
Showing 1 to 8 of 8 for “"Alþjóðafræði"”.
-
Heimilisofbeldi sem öryggismál : eru tengsl á milli heimilisofbeldis og samfélagsöryggis?
Í ritgerð þessari hefur verið leitað svara við því hvort tengsl séu á milli heimilisofbeldis og samfélagsöryggis. Til þess var öryggishugtakið skoðað ásamt því að skoða hugmyndafræði fræðimannanna Barry Buzan, Ole Wæver og Jaap de Wilde þar sem þeir settu fram öryggisvæðingarmódelið sem gengur að …
-
Hvað er ráðherraræði og hverjar eru birtingarmyndir þess og áhrif á íslenskt stjórnkerfi og stjórnsýslu?
Í þessari ritgerð verður leitast við að svara þeirri spurningu hvað ráðherraræði er, hvernig það birtist í íslensku stjórnkerfi og stjórnsýslu og jafnframt reynt að meta áhrif þess. Í upphafi er fjallað stuttlega um kenningar fræðimanna um það sem kalla má ráðherraræði en í síðari köflum er farið …
-
Töffarar, kerlingar og kynbombur
Í þessari ritgerð verður litið inn í heim lögreglunnar með kynjagleraugum. Leitað verður svara við spurningu um hvaða hlutverk kyn og kyngervi spila í störfum kvenna innan raða hennar. Lögreglustörf hafa sögulega talist til hefðbundinna karlastarfa og verður athugað af hverju svo hefur verið og …
-
Herlaust ríki í hernaðarbandalagi : vandamál eða möguleikar?
Í þessari ritgerð er staða Íslands í öryggis- og varnarmálum skoðuð út frá herleysi landsins og hvort það valdi vandkvæðum í NATO samstarfinu sem byggir á hernaðarlegum grunni. Til að svara þeirri spurningu er byrjað á að gera grein fyrir öryggisímynd Íslendinga og þeim breytingum sem hafa átt sér …
-
Ímynd múslima í vestrænum fjölmiðlum : samanburður á umfjöllun fjölmiðlanna BBC og RÚV um hryðjuverkaárásirnar í London, 7. júlí 2005
Áhuginn á verkefninu vaknaði í júlí á þessu ári þegar höfundur sá heimildarmynd sem gerð var í tilefni þess að sjö ár voru liðin frá árásunum í London. Fjallaði myndin, sem ber heitið Mind the Gap, um það sem gerðist þennan örlagaríka dag. Sorg þeirra sem misst höfðu ástvin var mikil og áttu þau …
-
Herferðir hjálparsamtaka og mannréttindahreyfinga á Íslandi
Í þessari ritgerð verður leitast við að svara þeirri spurningu hver hugmyndafræðin sé á bak við herferðir hjálparsamtaka á Íslandi. Í upphafi er stuttlega fjallað um kenningar fræðimanna um heimshyggju (e.cosmopolitanism) og einnig kenningu Roland Barthes um ,,punctum“ og ,,studium“ áhrif …
-
Smáríki og mótun þjóðaröryggisstefnu : hvaða möguleika hefur Ísland?
Áður en skrif verkefnisins hófst hafði höfundur nokkuð fyrirfram ákveðna mynd af því hvernig hagsmunum Íslands væri best borgið. Við dvöl í S-Kóreu haustið 2010 þar sem höfundur stundaði skiptinám sat hún námskeið þar sem kennarinn hafði mjög sterkar skoðanir á hvernig öryggismálum heimsins yrði að …
-
Nígería : farsæl framtíð eða áframhaldandi átök?
Í þessari ritgerð verður fjallað um pólitískt landslag Nígeríu en dramatísk umskipti hafa orðið á því landslagi frá því landið varð sjálfstætt árið 1960. Nígería hefur á síðastliðnu 51 ári átt erfitt uppdráttar, bæði á pólitískum vettvangi og í efnahags- og samfélagsmálum. Tilraunir hafa verið …