Back to results

Bifröst University

Töffarar, kerlingar og kynbombur

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð verður litið inn í heim lögreglunnar með kynjagleraugum. Leitað verður svara við spurningu um hvaða hlutverk kyn og kyngervi spila í störfum kvenna innan raða hennar. Lögreglustörf hafa sögulega talist til hefðbundinna karlastarfa og verður athugað af hverju svo hefur verið og hvað aðgreinir það frá öðrum hefðbundnum karlastörfum. Svokölluð lögreglumenning verður könnuð og af hverju hún hefur talist vera hindrun fyrir konur í lögreglunni. Kenningarnar um félagslega mótunarhyggju og eðlishyggju verða notaðar sem greiningartæki til að varpa ljósi á hugtökin kyn og kyngervi í tengslum við viðfangsefnið. Þá verður lögreglunni á Íslandi gerð skil í grófum dráttum og kynjahlutfall starfsmanna hennar skoðað. Auk þess verður stutt sögulegt yfirlit á sögu kvenna í íslensku lögreglunni tekið saman, ásamt þróun á störfum kvenna erlendis. Rýnt verður í tilgang, kosti og galla jafnréttisáætlana og meginatriði úr jafnréttisáætlun Ríkislögreglustjóra tekin fyrir. Rannsóknum um kyngervi, kynhlutverkum og leyndarmál lögreglunnar verða síðan gerð skil og að lokum verða niðurstöður úr eigindlegri rannsókn kynntar. Rætt var við tvær konur í lögreglunni á Íslandi til að fá innsýn inn í viðfangsefnið frá þeirra sjónarhorni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ingibjörg Ýr Jóhannsdóttir 1980-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/14099
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/14099

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ingibjörg Ýr Jóhannsdóttir 1980-. Töffarar, kerlingar og kynbombur. 2013. http://hdl.handle.net/1946/14099