Abstract
dc:description.abstractKröfur og væntingar til lýðræðisþjóðfélags eru sjaldan meiri en á tímum stríðs þar sem hagsmunir stjórnvalda geta rekist á við hlutverk fjölmiðla til að viðhalda sjálfstæði upplýstrar umræðu. Áreiðanleiki frétta er aldrei eins mikilvægur eins og á tímum stríðs þar sem um er að ræða líf og dauða. Þessi rannsókn skoðar frammistöðu RÚV til að fylgi eftir yfirlýstum markmiðum og starfsreglum um gerð frétta þegar litið er til Íraksstríðsins árið 2003. RÚV setur sér þær vinnureglur að heimildir frétta séu sem fyllstar og áreiðanlegastar og fluttar af sanngirni og óhlutdrægni. Heimildir frétta skal vera frá báðum eða öllum aðilum til að kynna sjónarmið þeirra sem jafnast. Í þessari rannsókn er fréttaflutningur RÚV skoðaður í gegn um kerfisbundinn greiningaramma þar sem stuðst er við rannsókn Robinson o.f. (2010). Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að RÚV hafi ekki samsvarað hlutverki sínu samkvæmt sínum eigin reglum og skyldum um gerð frétta af Íraksstríðinu, 2003. Rannsóknin veitir einstakt tækifæri til að gera samanburð á fréttum RÚV og annarra erlendra fréttamiðla og með því sjá hvernig RÚV er að standa sig sem hlutlægur fréttamiðill.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Dagný Alda Steinsdóttir 1962-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/13497
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/13497