Back to results

Bifröst University

Menningararfur Eyrarbakka : hver er menningararfur Eyrarbakka, hvernig er best að varðveita hann og hvers virði er hann fyrir íbúana og samfélagið?

Abstract

dc:description.abstract

Í þessu rannsóknarverkefni til MA prófs í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst, „Menningararfur Eyrarbakka“ var lögð fyrir rannsóknarspurningin: Hver er menningararfur Eyrarbakka, hvernig er best að varðveita hann og hvers virði hann er fyrir íbúana og samfélagið? Til að svara spurningunni var sjónum beint að helstu hugtökum sem tengjast menningararfinum og skilgreiningar á menningu, arfi og menningararfi voru rannsakaðar, ásamt hugtökunum um virði, virðismat og virðisgreiningu. Einnig verður rýnt í hvernig menningararfurinn er túlkaður og mikilvægi þess að varðveita hann. Til að túlka menningararf Eyrarbakka og rannsaka viðfangsefnið voru tekin viðtöl við ólíka aðila sem hafa allir skoðun á málefninu, það er að segja aðila sem hafa fræðilegan þekkingu, Eyrbekkinga, og aðila sem hafa pólitískan bakgrunn. Þessir aðilar voru spurðir úti í menningararf Eyrarbakka og hvernig þeir túlka hann. Samhliða því verður skoðað hvað felst í hugtakinu „virði“ og hvaða aðferð er notuð til að greina virði menningararfsins.Við virðisgreininguna voru kenningar David Thorsby og aðferðir Ståle Navrud og Richard Ready notaðar ásamt niðurstöðum úr netkönnun. Helstu niðurstöður voru þær að „Húsið“ ásamt gömlu húsunum og verslunarsögu Eyrarbakka gefur þorpin sérstöðu sína og skapar ímynd Eyrarbakka út á við. Hagrænt virði menningararfsins var ekki mælanlegt en menningin styrkir menningartengda atvinnu á svæðinu. Húsið sem hýsir Byggðarsafn Árnesinga hefur að geyma verulegt menningarlegt og félagslegt virði fyrir íbúana og samfélagið.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ólöf Halldóra Þórarinsdóttir 1980-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12689
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12689

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ólöf Halldóra Þórarinsdóttir 1980-. Menningararfur Eyrarbakka : hver er menningararfur Eyrarbakka, hvernig er best að varðveita hann og hvers virði er hann fyrir íbúana og samfélagið?. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12689