Back to results

Bifröst University

Hver er staða minnihlutahluthafa gagnvart ráðandi hluthöfum stórra hlutafélaga og misnotkun þeirra á stöðu sinni?

Abstract

dc:description.abstract

Við bankahrunið 2008 kom í ljós að löggjöf á réttarsviðinu virðist ekki hafa verið fullnægjandi. Breytingar á hlfl. með lögum nr. 89/2006, virðast ekki hafa verið nógu róttækar miðað við aðstæður. Ákvæði varðandi starfandi stjórnarformenn og viðskipti félaga með eigin hluti voru t.d. ekki nógu afgerandi. Er dæmi nefnt um Hrd nr. 228/2009 (Glitnir) en með lögum nr. 68/2010 er tekið meðal annars á þessum atriðum. Í ritgerðinni er fjallað um jafnræði hluthafa í félögum, að réttindi allra hluta í félagi séu jöfn. Fjallað er um grundvallarregluna um meirihlutaræði hluthafa við ákvarðanatökur á hluthafafundum og æðsta vald hans í málefnum félaga. Einnig er fjallað um að mögulegt er að misnota kerfisbundið ákvarðanir um arðsúthlutum í þeim tilgangi að þvinga minnihlutaeigendur til þess að selja hluti sína jafnvel á of lágu verði. Vísbendingar eru um að í ýmsum veigamiklum atriðum hafi ekki alltaf verið gætt að minnihlutavernd t.d. í Hrd. nr. 678/2008 þar sem stjórn félagsins tók ólögmæta ákvörðun sem studd var af meirihluta hluthafa með ásetningi um að valta yfir minnihlutann. Margt bendir til þess að hagsmunir minni hluthafa hafi verið fyrir borð bornir í hinum ýmsu „umbreytingaferlum― sem svo mjög komust í tísku hjá „duglegum― athafnamönnum sem sumir hverjir störfuðu við daglegan rekstur félaga. Afleiðingar af ákvörðunum um umbreytingar á almenningshlutafélögum eins og t.d. Eimskips („stóra uppstokkunin―) sem nefndar hafa verið „fyrirtækjagripdeildir― virðast hafa komið minni hluthöfum í opna skjöldu og að þeir hafi ekki áttað sig á hvað raunverulega var að gerast.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hilmar Einarsson 1957-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12633
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12633

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hilmar Einarsson 1957-. Hver er staða minnihlutahluthafa gagnvart ráðandi hluthöfum stórra hlutafélaga og misnotkun þeirra á stöðu sinni?. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12633