Back to results

Bifröst University

Markaðssetning á rafmagnsbílum í Vestmannaeyjum

Abstract

dc:description.abstract

Að mati höfundar hafa rafmagnsbílar alla burði til að verða samkeppnishæfir á bílamarkaðnum. Þróun rafmagnsbíla eykst á hverjum degi þar sem stöðug og öflug þróunarvinna skilar sífellt betri rafmagnsbílum. Tilgangur þessa verkefnis er að kanna hvort og þá hvernig sé best að markaðssetja rafmagnsbíla í Vestmannaeyjum. Með tilkomu rafmagnsbílsins hefur umhverfi bílamarkaðarins breyst umtalsvert. Áður fyrr voru eingöngu bílar á markaðnum sem gengu fyrir jarðefnaeldsneyti. Nú er öldin önnur og bílar sem drifnir eru áfram af vetni, metani og rafmagni farnir að ryðja sér til rúms á markaðnum. Ætla má að ástæðan fyrir þessum breytingum á markaðnum sé sú að sögusagnir hafa verið um að olía sem orkugjafi, sé af skornum skammti á jörðinni. Má draga af því ályktun að fólk sé í auknum mæli farið að huga að umhverfisvænni bílum sem gefa frá sér mun minni koltvíoxíð heldur en bílar sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti eins og bensín og dísel. Að skapa sér gott orð á markaði er ómetanlegt. Fólk hugsar fyrst til þeirra sem standa sig best á markaðnum þegar það verslar vöru eða þjónustu. Að mati höfundar þarf að bæta markaðssetningu rafmagnsbíla ef þeir eiga ekki að lenda undir í baráttunni við vetnis- og metanbílana um markaðshlutdeild. Góð markaðssetning og skipulagt markaðsstarf er lykillinn að góðri markaðsstöðu og þróun á markaði. Gera þarf ítarlega áætlun um það hvernig best sé að markaðssetja rafmagnsbíla í Vestmannaeyjum með það að markmiði að með tímanum komi þeir til með að vera stór hluti af orkunotkun Vestmannaeyinga. Niðurstaða rannsóknarinnar er sú að miðað við það ástand sem nú ríkir í íslensku efnahagslífi sem og aukinn áhugi fólks á að minnka útblástur gróðurhúsalofttegunda þá séu auknar líkur á að rafmagnsbíllinn geti orðið sá fararskjóti sem Vestmannaeyingar kjósa sér í nánustu framtíð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Adólf Sigurjónsson 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/11000
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/11000

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Adólf Sigurjónsson 1985-. Markaðssetning á rafmagnsbílum í Vestmannaeyjum. 2012. http://hdl.handle.net/1946/11000