Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi fjallar um atkvæðarétt í veiðifélögum samkvæmt 40. gr. laga nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði. Sérstaða atkvæðaréttarins liggur í þeirri meginreglu að hver félagsmaður hefur eitt atkvæði fyrir hvert lögbýli sem hann ræður yfir óháð því hversu stóra hlutdeild hann á í tekjum, gjöldum og eignum veiðifélagsins. Fjallað er um sögu og tilurð ákvæðisins og viðhorf manna á mismunandi tímum til atkvæðaréttarins. Ákvæðið er borið saman við reglur eignaréttar, hvort það skerði eignarétt manna að vægi atkvæða og áhrif innan veiðifélaga fari ekki saman við eign og kostnaðarhlutfall. Ákvæðið er líka borið saman við reglur félagaréttar og þá sérstaklega rétt manna til að standa utan félaga, það er neikvætt félagafrelsi samanber 2. mgr. 74. gr. stjórnarskrárinnar og 11. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Haraldur Júlíusson 1964-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/10967
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/10967