Back to results

Bifröst University

Samrunaréttur samkeppnisréttar : þróun frá setningu samkeppnislaga nr. 8/1993

Abstract

dc:description.abstract

Reglur er varða samruna voru lögfestar með samkeppnislögum nr. 8/1993. Reglurnar hafa tekið töluverðum breytingum frá setningu laganna og leitaðist höfundur eftir því að varpa ljósi á þá þróun sem hefur átt sér stað á þessu sviði samkeppnisréttarins. Við vinnslu ritgerðarinnar voru frumvörp til samkeppnislaga skoðuð ásamt frumvörpum til laga um breytingu á þeim. Þá var fjöldinn allur af ákvörðunum og úrskurðum samkeppnisyfirvalda skoðaður ásamt því að litið var til nokkurra dóma Hæstaréttar. Leitast var við að skoða þau nýmæli sem komið hafa inn í löggjöfina og hvaða ástæður lágu þeim að baki en einnig voru ýmis hugtök skoðuð í þeim tilgangi að sjá hvernig þau hafa verið skilgreind hjá samkeppnisyfirvöldum. Niðurstaða höfundar er í meginatriðum sú að við breytingar á samrunareglum samkeppnisréttar hefur mikið verið litið til Evrópu. Breytingarnar hafa tekið mið af því hvernig málum er háttað þar ásamt því hvernig reynslan af settum lögum og reglum hefur verið hér á landi. Nýmæli hafa komið inn í löggjöfina en breytingar hafa einnig verið gerðar í þeim tilgangi að gera ákvæði bæði skýrari og ítarlegri. Einnig hefur borið á því að lög og reglur hafa verið sett til að koma í veg fyrir misskilning og mistök hjá samkeppnisyfirvöldum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Berglind Ýr Kjartansdóttir 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/10965
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/10965

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Berglind Ýr Kjartansdóttir 1988-. Samrunaréttur samkeppnisréttar : þróun frá setningu samkeppnislaga nr. 8/1993. 2012. http://hdl.handle.net/1946/10965