Back to results

Bifröst University

Hverjar eru reglur um minnihlutavernd í hlutafélagalögum?

Abstract

dc:description.abstract

Í lokaverkefni þessu verða skoðaðar þær helstu reglur er tengjast minnihlutavernd í hlutafélagalögum. Í upphafi verður farið yfir grunnatriði félagaréttar ásamt því að gert verður grein fyrir hlutafélagalöggjöf á Íslandi og þróun hennar frá því hún var fyrst sett. Því næst verður fjallað um hvað felst í orðinu minnihlutavernd og lauslega farið yfir rök með og á móti því að hún sé til staðar. Þá verða tekin saman helstu ákvæði í lögum er fela minnihlutanum hverskonar vernd. Skoðaðar verða bæði þær almennt orðuðu reglur er fela minni hluthöfum ákveðna vernd, sem og ákvæði er bera tiltekin réttindi. Farið verður ítarlega yfir þau ákvæði, þróun þeirra og reynt að finna út hver vilji löggjafans var við setningu þeirra. Þá verða skoðaðar sérstaklega þær breytingar er urðu á löggjöfinni árið 2010, en árið 2009 gaf Lagastofnun Háskóla Íslands út skýrslu sem gerði ítarlega úttekt á minnihlutavernd hérlendis í samanburði við norræna löggjöf. Varð sú skýrsla til þess að auka vernd minni hluthafa í lögum, en farið verður yfir helstu breytingar og nýmæli sem fram komu í kjölfarið. Að endingu verður efnið dregið saman og athugað hver réttarstaða minni hluthafa er hérlendis og hvernig hún hefur þróast.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Rúnar Ágúst Svavarsson 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/10019
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/10019

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Rúnar Ágúst Svavarsson 1982-. Hverjar eru reglur um minnihlutavernd í hlutafélagalögum?. 2011. http://hdl.handle.net/1946/10019