Back to results

Agricultural University of Iceland

Frá frístundabyggð til íbúðarbyggðar

Abstract

dc:description.abstract

Á undanförnum árum hefur færst í aukana að frístundasvæði á Íslandi þróist í átt að íbúðarbyggð, sem skapar nýjar áskoranir fyrir skipulagsmál og stjórnsýslu sveitarfélaga. Markmið þessarar rannsóknar er að greina hvaða tækifæri skapast og áskoranir verða til fyrir minni sveitarfélög þegar frístundabyggð er breytt í íbúðarbyggð, með tilviksrannsókn á Gaddstöðum í Rangárþingi ytra. Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferðafræði þar sem stuðst er við greiningu skipulagsgagna, fundargerða og greiningu viðtala við kjörna fulltrúa og starfsmenn sveitarfélagsins. Samhliða er stuðst við fræðilegar heimildir við rannsóknina. Áherslur voru lagðar á fræðlegar greinar sem fjalla um sjálfbærni, búsetuóskir og valdatengsl í skipulagsferlum, í því skyni að varpa ljósi á hvernig slíkir þættir móta ákvarðanatöku og þróun byggðar. Niðurstöður benda til þess að breytingar á landnotkun séu að stórum hluta drifnar áfram út frá óskum íbúa og landeigenda fremur en heildstæðri stefnumótun sveitarfélags. Þær fela í sér ákveðin tækifæri, til að mynda auknar tekjur fyrir sveitarfélög, fjölgun íbúa og styrkingu byggðar. Hins vegar fylgja þeim einnig verulegar áskoranir, meðal annars tengdar uppbyggingu innviða og auknum þjónustukostnaði. Einnig benda niðurstöður til þess að skortur sé á kerfisbundnu mati við ákvarðanatökur og annmarkar innan stjórnsýslunnar. Niðurstöður sýna jafnframt fram á togstreitu milli markmiða skipulagsstefnu um sjálfbæra þróun og þéttingu byggðar annarsvegar og raunverulegrar þróunar. Rannsóknin undirstrikar að breytingar á landnotkun eru flókið ferli sem mótast af samspili hagsmuna, staðbundinna aðstæðna og ákvarðana. Niðurstöðurnar hafa þýðingu fyrir stefnumótun og skipulag innan minni sveitarfélaga, sérstaklega með tilliti til þess hvernig hægt er að samræma þróun byggðar, uppbyggingu innviða og ákvarðanir sem teknar eru af stjórnsýslunni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Karitas Ottesen Ásmundsdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53891
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53891

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Karitas Ottesen Ásmundsdóttir 1989-. Frá frístundabyggð til íbúðarbyggðar. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53891