Back to results

Agricultural University of Iceland

Söguleg almenningsrými á Siglufirði: Greining með HUL-nálgun

Abstract

dc:description.abstract

Söguleg almenningsrými gegna mikilvægu hlutverki í þróun bæja og borga þar sem þau styðja við lífsgæði, félagslega samheldni og vernd menningararfs. Á Íslandi hefur skortur á heildstæðri stefnu um þróun og vernd slíkra rýma orðið til þess að mörg þeirra, einkum í smærri bæjum,eru vanrækt eða vannýtt. Viðfangsefnið beinist að Siglufirði,smábæ á norðanverðu Íslandi, þar sem byggð og samfélagslíf mótuðust af síldarvinnslu á 20. öld og þar sem varðveisla menningararfs hefur verið mikilvægur þáttur í staðarímynd og samfélagslífi. Markmiðið er að kanna hvernig hægt sé að endurheimta, viðhalda og þróa söguleg almenningsrými á Siglufirði þannig að vernd menningararfs, samfélagsleg notkun og langtímagildi fari saman. Verkefnið tekur mið af nokkrum sögulegum svæðum sem komu til greina við afmörkun þess, en Evanger-svæðið var valið sem lykilsvæði til nánari greiningar. Verkefnið byggir á nálgun UNESCO um Historic Urban Landscape (HUL), þar sem lögð er áhersla á samþættingu menningararfs, landslags, borgarforms og samfélagslegra þátta í skipulagsgerð. Aðferðafræðin sameinar rýmislega greiningu, vettvangsathuganir, spurningakönnun og eigindleg viðtöl. Þessum aðferðum var beitt í áföngum: fyrst voru rýmin greind og flokkuð, en síðan var notkun þeirra og samfélagslegt gildi metið. Niðurstöður sýna að söguleg almenningsrými á Siglufirði hafa verulegt samfélagslegt og menningarlegt gildi, en að skortur er á heildstæðri stefnumótun og samþættingu verndar og þróunar. Greiningin sýnir að nokkur miðlæg og sögulega mikilvæg rými bera merki vannýtingar og skorts á viðhaldi, á meðan niðurstöður úr þátttöku íbúa benda til sterks vilja til bætts aðgengis og aukinnar notkunar í daglegu lífi. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að þróun slíkra rýma taki mið af staðbundnum aðstæðum, sögulegu samhengi og virkri þátttöku samfélagsins.Jafnframt eru dregin fram atriði sem geta nýst við skipulagslega umræðu og framtíðarþróun sögulegra almenningsrýma í smærri íslenskum bæjum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elva Dögg Sverrisdóttir 1976-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53710
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53710

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elva Dögg Sverrisdóttir 1976-. Söguleg almenningsrými á Siglufirði: Greining með HUL-nálgun. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53710