Back to results

Agricultural University of Iceland

Hvítsmári sem fóstra fyrir nýgróðursettar birkiplöntur

Abstract

dc:description.abstract

Í nýskógrækt á Íslandi er nýgróðursettum plöntum yfirleitt gefinn áburður til að tryggja hraðan upphafsvöxt og draga úr hættu á frostlyftingu, sem er algengt vandamál í íslenskum jarðvegi. Skógræktarsvæði eru oft næringarsnauð, þar sem bæði nitur og fosfór vantar í jarðveginn. Þetta á sérstaklega við þegar birkiskógrækt er stunduð á illa förnu landi þar sem jarðvegur hefur að stórum hluta tapast vegna jarðvegsrofs. Reynslan sýnir að einföld áburðargjöf við gróðursetningu dugar ekki til við slíkar aðstæður, plönturnar þurfa endurtekna áburðargjöf í nokkur ár til að tryggja vöxt og lifun. Þessi aðferð er kostnaðarsöm og skilur eftir sig kolefnisspor vegna framleiðslu og dreifingar áburðarins. Í þessari rannsókn var kannað hvort hvítsmári (Trifolium repens) geti stuðlað að bættri lifun og vexti birkis (Betula pubescens Ehrh.) við gróðursetningu á næringarsnauðum svæðum í nýskógrækt og landgræðslu. Sérstök áhersla var lögð á tvær sáningaraðferðir, sáningu hvítsmára í fjölpottabakka með birki og sáningu í kringum plöntuna við gróðursetningu. Tilraunin fór fram á fjórum stöðum á Íslandi með mismunandi gróður- og jarðvegsaðstæður, þar sem bornar voru saman mismunandi áburðarmeðferðir (lífrænar, ólífrænar og viðmið án áburðar). Niðurstöðurnar sýndu marktæk áhrif bæði með tilliti til áburðar og staðsetningar á hæð og lifun birkiplanta. Lifun hvítsmárans var hins vegar almennt lág og virtist fremur ráðast af staðbundnum aðstæðum en áburðargerð. Veðurfarslegar áskoranir sumarið 2023 og hugsanleg áhrif kuldatíðar og snjóleysis veturinn 2023–2024 kunna að hafa haft neikvæð áhrif á spírun og lifun smárans. Þótt sáning hvítsmára með nýgróðursettum trjám hafi gefið takmarkaðan árangur í þessari tilraun og afföll hafi víða verið mikil, eru niðurstöðurnar ekki nægjanlegar til að útiloka möguleika hans alfarið. Frekari rannsóknir eru nauðsynlegar til að skýra hvort, og við hvaða skilyrði, slík nálgun geti skilað árangri í nýskógrækt á næringarsnauðum svæðum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Eiður Eyþórsson 1992-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 9

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/51499
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/51499

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Eiður Eyþórsson 1992-. Hvítsmári sem fóstra fyrir nýgróðursettar birkiplöntur. 2025. https://hdl.handle.net/1946/51499