Back to results

Agricultural University of Iceland

Hlutverk grasbíta í frædreifingu á hálendi Austurlands

Abstract

dc:description.abstract

Frædreifing með aðstoð dýra er mikilvægt ferli innan vistkerfa. Algengt er að aldinætur dreifi fræjum. Einnig er þekkt að grasbítar dreifi fræjum þegar þeir borða plöntur og innbyrða fræ þeirra í leiðinni en ekki er ljóst hversu útbreidd sú aðferð við frædreifingu er. Frædreifing með grasbítum getur reynst vera skilvirk aðferð við að ferja fræ langar leiðir og um leið gera plöntum kleift að nema land á nýjum svæðum. Markmið rannsóknarinnar er að veita betri innsýn í frædreifingu grasbíta með því að kanna hlutverk grasbíta í frædreifingu á hálendi Austurlands. Algengustu grasbítategundir á rannsóknarsvæðinu eru heiðagæs, hreindýr og sauðfé. Í þessu verkefni voru notuð saursýni frá fyrrnefndum grasbítum sem safnað var fyrir annað verkefni og þau ræktuð í ræktunarklefa sem líkir eftir íslensku sumri. Engin fræ spíruðu og því var ákveðið að byggja verkefnið á niðurstöðum úr sambærilegum rannsóknum ásamt gögnum um saurfjölda á rannsóknarsvæðinu. Niðurstöður úr verkefninu benda til þess að heiðagæs, ásamt sauðfé, spila mikilvægt hlutverk í frædreifingu og að hlutverk hreindýra sé lítils háttar. Samanlagt geta grasbítategundirnar þrjár mögulega dreift um 34 mismunandi plöntutegundum og 308.294 fræjum eða 48,9 fræ/m2 um hálendi Austurlands. Þessar niðurstöður styðja við aðrar rannsóknir sem hafa sýnt fram á mikilvægi grasbíta í frædreifingu sem er ógnað af loftslagsbreytingum og búsvæðaeyðingu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Rannveig María Björnsdóttir 1996-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50571
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50571

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Rannveig María Björnsdóttir 1996-. Hlutverk grasbíta í frædreifingu á hálendi Austurlands. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50571