Agricultural University of Iceland
Útbreiðsla birkis (Betula pubescens) í Bæjarstaðarskógi
Abstract
dc:description.abstractBæjarstaðarskógur er náttúrlegur birkiskógur staðsetur á Suðausturlandi. Hann er einstakur á Íslandi þar sem beint, hávaxið birki vex þar í miklu magni, sem er sjaldgæft í íslenskum birkiskógum. Skógurinn hefur verið friðaður síðan árið 1935 og var þá girtur af til að vernda hann gegn beit. Eftir það hefur hann breiðst út og þést verulega. Bæjarstaðarskógur hefur mikið verndar og vísindalegt gildi þar sem hann gefur innsýn í náttúrlegan þroskaferil og útbreiðslu íslensks birkis án mikilla áhrifa frá beit eða ræktun. Markmið þessarar ritgerðar var að skoða útbreiðslu Bæjarstaðarskógar yfir tíma og rúm með því að nýta eldri loftmyndir og greiningartól í forritinu ArcGIS Pro. Með því að teikna fláka yfir skógarútbreiðslu á mismunandi tímabilum og bera saman stærðir þeirra, er hægt að meta hvernig skógurinn hefur vaxið og þróast í gegnum tíðina. Annað markmið var að lýsa þeim breytingum sem verða á byggingu skógarins með aldri. Til þess voru lagðir út tólf mælifletir í misgömlum hlutum skógarins sem mældir voru með aðferðum hefðbundna skógmælinga, og borkjarnar teknir út yfirhæðartrjám til aldurgreininga með talningu árhringina í þeim. Saga Bæjarstaðarskógar er mótuð af umhverfisþáttum og mannlegum áhrifum í gegnum aldirnar. Mikil beit var á svæðinu áður fyrr, sem hafði neikvæð áhrif á endurnýjun skógarins. Árið 1935 var svæðið friðað og girt af, sem markaði tímamót í verndun hans og hefur líklega stuðlað að endurvexti og útbreiðslu hans í seinni tíð
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Guðmundur Freyr Kristjánsson 1975-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50553
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/50553