Back to results

Agricultural University of Iceland

Ertuygla: áhrif ertuyglu á mismunandi afkvæmahópa alaskaaspar

Abstract

dc:description.abstract

Fyrir nokkrum árum fór að bera á skemmdum í lúpínubreiðum og ungskógrækt af völdum ertuyglu á Suðurlandi. Ertuyglan í hópi næturfiðrilda og er þekktur skaðvaldur víða um Evrópu en þó hún sé ekki nýr þegn á Íslandi og nokkrir faraldrar hafa gosið upp þá hefur hún að mestu lagst á lúpínu. Það skýrir útbreiðslu hennar því lúpína er mikið notað á uppgræðslusvæðum og oft sem undanfari skógaræktar. Ertuyglan bindur sig þó ekki einungis við skógarsvæði í lúpínubreiðum og er farin að valda usla víðar. Vaknað hafði upp áhuga að kanna hvort einhverjir klónar plantna hafi meira þol gagnvart þessum vágest en aðrir. Farið var út í það að skoða áhrif ertuyglu á mismunandi afkvæmahópa alaskaspar til að forvitnast um hvort einhver hópur sé með meiri mótstöðu fyrir ertuyglu en aðrir hópar. Tekin var út afkvæmatilraun á Sóleyjarbakka í Árnessýslu sumarið 2007. Sjö afkvæmahópar voru valdir úr tilrauninni og niðurstöður matsins á þessum afkvæmum var síðan borin saman við niðurstöður úttektar á sömu afkvæmahópum árið 2005. Markmið verkefnisins var að finna út hvort; marktækur munur væri á sækni ertuyglu í mismunandi afkvæmahópa alaskaaspar og hvort tengsl væri á milli hæðar plantnanna og beitar. Og svo í lokin, var skoðað, hvort tengsl væri á milli beitarþols og þoli gegn ryði, þ.e hvort hægt sé að velja þolnar plöntur fyrir báða þessa skaðvalda í einu. Athyglisverðar niðurstöður komu út úr úttektinni en marktækur munur reyndist vera á milli afkvæmahópa hvað varðar beit á blöðum og heildarbeit á plöntum. Afkvæmahópur Súlu/Pinna komu best út fyrir báðar breyturnar en afkvæmahópur Súlu/Hallorms kom marktækt verst út. Hæð plantna virtist ekki skýra beitina því lægri plöntur voru ekkert frekar illa farnar en lægri plöntur þannig að það er eitthvað í erfðaefni plönturnar sem skýrir þessar niðurstöður. Ekkert samband var á milli beitarþols og ryðþols og því ekki hægt að velja þolna einstaklinga fyrir bæði í einu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hrönn Guðmundsdóttir 1959-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4574
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4574

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hrönn Guðmundsdóttir 1959-. Ertuygla: áhrif ertuyglu á mismunandi afkvæmahópa alaskaaspar. 2010. http://hdl.handle.net/1946/4574