Back to results

Agricultural University of Iceland

Stofnsveiflur og hnignun Atlantshafslax, hvað veldur?

Abstract

dc:description.abstract

Stofnum Atlanshafslax (Salmo salar) hefur almennt farið hnignandi frá árinu 1980. Þrátt fyrir samdrátt í veiðum, hertar veiðireglur og aðgerðir til þess að bæta og/eða endurheimta búsvæði laxa í ferskvatni hefur stofnum haldið áfram að hnigna. Hækkandi dánartíðni laxa í hafi er talin vera megin ástæða hnignandi stofna en áhrifaþættir í ferskvatni spila einnig mikið inn í og því er líklegt að um samvirkni margra þátta sé að ræða. Þær tilgátur sem lagðar hafa verið fram sem mögulegar ástæður fyrir sveiflum eða hnignun stofna eru m.a.: loftslagsbreytingar, léleg fæðuskilyrði í sjó, afrán, eyðilegging búsvæða, atnsaflsvirkjanir, mengun, laxeldi, ágengar tegundir, sjúkdómar og sníkjudýr, ofveiði og seiðasleppingar. Líklegt er að meginástæða fyrir sveiflum og hnignun laxastofna í Norður-Atlantshafi séu áhrif loftslagsbreytinga en fyrir afmarkaðari svæði eða einstaka stofna geta aðrir þættir vegið þyngra. Villtir Atlantshafslaxastofnar eru verðmæt náttúruauðlind og hluti af líffræðilegum fjölbreytileika vistkerfa. Í ljósi þess er mikilvægt að efla rannsóknir svo að hægt sé að viðhalda og nýta stofnana á sem sjálfbærastan hátt.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ásgerður Elín Magnúsdóttir 1996-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44844
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44844

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
related terms
citation

Ásgerður Elín Magnúsdóttir 1996-. Stofnsveiflur og hnignun Atlantshafslax, hvað veldur?. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44844