Back to results

Agricultural University of Iceland

Hjólreiðar í ríki Vatnajökuls. Vistvænar samgöngur á Höfn í Hornafirði

Abstract

dc:description.abstract

BS ritgerð þessi fjallar um hjólreiðar á Höfn í Hornafirði, vistvænar samgöngur og götuhönnun. Hornafjörður er í einstakri stöðu til að vera leiðandi sveitarfélag á landsvísu hvað varðar hjólreiðar vegna landfræðilegra legu og veðurskilyrða. Innviðir eru sumir til staðar en eru illa nýttir þó þeir hafi góða möguleika til endurbóta. Í þessari ritgerð er samgönguskipulag í þéttbýli á Höfn í Hornafirði skoðað út frá samhengi heimsmarkmiða sameinuðu þjóðanna og styðst ég einnig við rannsóknir og kannanir sem hafa verið framkvæmdar við norrænt samstarfsverkefni sem Sveitarfélagið Hornafjörður tók þátt í undir yfirskriftinni Aðlaðandi bæir. Ritgerðin rannsakar samgönguvenjur Hornfirðinga og greinir mismunandi þarfir íbúa á Höfn. Í kjölfar af því mun ég útbúa leiðbeinandi áætlun fyrir legu hjólaleiða og útfærslur á hönnun stíga og gatnamóta á Höfn. Þá er einnig rýnt í bílamenningu Íslendinga og samgönguskipulag skoðað í sögulegu samhengi. BS ritgerð þessi fjallar um hjólreiðar á Höfn í Hornafirði, vistvænar samgöngur og götuhönnun. Hornafjörður er í einstakri stöðu til að vera leiðandi sveitarfélag á landsvísu hvað varðar hjólreiðar vegna landfræðilegra legu og veðurskilyrða. Innviðir eru sumir til staðar en eru illa nýttir þó þeir hafi góða möguleika til endurbóta. Í þessari ritgerð er samgönguskipulag í þéttbýli á Höfn í Hornafirði skoðað út frá samhengi heimsmarkmiða sameinuðu þjóðanna og styðst ég einnig við rannsóknir og kannanir sem hafa verið framkvæmdar við norrænt samstarfsverkefni sem Sveitarfélagið Hornafjörður tók þátt í undir yfirskriftinni Aðlaðandi bæir. Ritgerðin rannsakar samgönguvenjur Hornfirðinga og greinir mismunandi þarfir íbúa á Höfn. Í kjölfar af því mun ég útbúa leiðbeinandi áætlun fyrir legu hjólaleiða og útfærslur á hönnun stíga og gatnamóta á Höfn. Þá er einnig rýnt í bílamenningu Íslendinga og samgönguskipulag skoðað í sögulegu samhengi. Höfn býr í dag yfir þokkalega heildstæðu neti stíga til útivistar og hreyfingar en markmið mitt mun vera að tengja saman það stígakerfi við samgönguása bæjarins og koma upp með hönnun hjólreiðanets sem styður við fjölbreyttari ferðavenjur til og frá vinnu og í daglegum amstri. Ég byggi rannsóknir að hluta til á norrænu samstarfsverkefni um aðlaðandi bæi auk annarra rannsókna sem unnar hafa verið á Íslandi. Samanborið við áætlanir og aðgerðir annarra borga og sveitarfélaga, hvaða hugmyndir og áherslur er hægt að innleiða við skipulag á Höfn. Önnur þéttbýli sem ritgerðin horfir til sem samanburðarsvæði eru Reykjavík, Akureyri og Ystad í Svíþjóð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Styrmir Níelsson 1995-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/41628
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/41628

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Styrmir Níelsson 1995-. Hjólreiðar í ríki Vatnajökuls. Vistvænar samgöngur á Höfn í Hornafirði. 2022. http://hdl.handle.net/1946/41628