Abstract
dc:description.abstractDægurflugur (Ephemeroptera) er ættbálkur vatnaskordýra sem finnst í öllum heimsálfum utan Suðurskautslandsins. Víða erlendis eru þetta þekktar flugur sem vekja talsverða athygli þegar þær fljúga upp svo milljónum skipta í stórum sveimum. Dægurflugur taka ófullkominni myndbreytingu og lífsferill þeirra skiptist í fjögur stig, egg- og gyðlustig sem eru í vatni og unglings- og fullorðinsstig sem eru vængjuð stig í lofti og á landi. Sérstaða dægurflugna meðal núlifandi skordýra er að þær hafa ein hamskipti eftir að þær eru komnar með vængi. Dægurflugugyðlur er auðvelt að greina frá öðrum vatnaskordýrum á hölunum þremur aftur úr afturbol og röð tálkna á hliðum afturbolsliða. Þær eru frekar stórar flugur og eru því góður biti fyrir stærri rándýr í vötnum, því eru þær hún vinsæl fyrirmynd fluguveiðimanna sem stunda fluguhnýtingar og laxveiði. Til að svara þeim spurningum sem settar voru fram um hversu margar tegundir dægurflugna finnast á Íslandi og útbreiðslu hennar á landsvísu var notast við fyrirliggjandi efnivið og niðurstöður rannsókna þar sem dægurflugur komu fyrir. Samkvæmt niðurstöðum þessa verkefnis er fisdægra, C. simile, eina dægurflugutegundin sem finnst á Íslandi og er hana helst að finna í tjörnum, allt að 200 cm djúpum, á láglendi. Þó finnst hún í stærri vötnum, t.d. Elliðavatni og Mývatni, og einnig finnst hún í yfir 300 m hæð yfir sjó, í tjörn á Þeistareykjum á Norðausturlandi. Hún finnst á Norður-, Austur- og Suðurlandi en hefur ekki fundist á Vesturlandi og Vestfjörðum. Gögn úr tveimur rannsóknarverkefnum sem athuganir á vistfræði fisdægru byggðu á bentu til að innan hvers rannsóknasvæðis þar sem hana var að finna var heilt yfir ekki munur á eðlis- og efnaþáttum með eða án fisdægru í tjörn og líklegra en ekki að finna fisdægru og rándýr saman í tjörn. Ríkjandi vatnagróður á öllum svæðunum var síkjamari og gulstör og reyndist það einnig vera í tjörnum með fisdægru.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Þóra Atladóttir 1980-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/38853
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/38853