Back to results

Agricultural University of Iceland

Grænar grundir. Saga, forsenda og hönnun grunnskólalóða

Abstract

dc:description.abstract

Þessi heimildaritgerð er lokaverkefni til B.S. gráðu í Landslagsarkitektúr frá Landbúnaðar-háskóla Íslands. Reynt er að komast til botn um af hverju skólalóðir eru eins og þær eru. Ímynd skólalóða er almennt ekki góð. Þær eru sagðar gráar og óspennandi og að ástæðan sé strangur lagarammi og hræðsluáróður í þjóðfélaginu, fólk vill ekki að börnin slasist. Einnig er spurning hvort landslagsarkitekarnir/hönnuðirnir séu fastir í sama farinu og hver áherslan hjá þeim sé. Börn eyða meiri part dagsins í skólanum og því er skólalóðin næsta útiumhverfið þeirra. Umhverfið sem er hluti af vinnuumhverfinu ætti með öllu að vera nærandi. Skólalóðir er efni sem virðist ekki hafa verið sett hátt undir höfði varðandi heimildir eða skráningu. Fáar heimildir um þróun eru til um íslenskar sem og erlendar lóðir sem bendir til þess hversu lítið hefur verið hugsað út í þær. Úti í heimi eru þó um 30 ár síðan fólk áttaði sig á að grænkun hafi bæði góð andleg og líkamleg áhrif á börn. Þar er aðaláhersla lögð á að koma gróðri og náttúru inn á lóðirnar, bæði til að fjölga tækifærum á mismunandi leik en einnig til þess að hægt sé að nota þær í kennslu. Til eru aragrúi af rannsóknum sem hafa kannað áhrif gróðurs og náttúru á börn og mæla þær allar með því að sem mestum tíma sé eitt í kringum hið græna. Ennfremur eru til ítarleg leiðbeiningarrit um hvernig grænkun lóða fer fram og hvað getur verið á þeim, þau eru einnig byggð á rannsóknum. Þróun skólalóða á Íslandi virðist vera á leið í átt að grænkun, þ.e. margt bendir til þess að hugsunarháttur kennara um hvað náttúran getur gert fyrir skólaumhverfið sé kominn en einnig viljinn til að framkvæma. Það á einnig við um sum bæjaryfirvöld og hönnuði. Þó er þörf á frekari rannsóknum og vitunarvakningu þegar kemur að íslenskum skólalóðum. Ef til vill þyrfti að skerpa á þessum málaflokki innan þeirra laga sem hann lútir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elísabet Bjarnadóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/37247
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/37247

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elísabet Bjarnadóttir 1979-. Grænar grundir. Saga, forsenda og hönnun grunnskólalóða. 2020. http://hdl.handle.net/1946/37247