Agricultural University of Iceland
Vistvænar tengingar milli sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu - úrlausnir til að auka lífsgæði
Abstract
dc:description.abstractHöfuðborgarsvæðið skiptist í sjö sveitarfélög og þau eru öll aðilar að samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Hvert sveitarfélag gerir sitt aðalskipulag og í sameiningu gera þau svæðisskipulag sem gildir yfir allt höfuðborgarsvæðið. Núgildandi svæðisskipulag ber heitið Höfuðborgarsvæðið 2040 og er með megináherslu á nýtt hágæða almenningssamgöngukerfi. Höfuðborgarsvæðið hefur stækkað ört og orðið dreifbýlla sem gerir það að verkum að það myndast meiri þörf fyrir samgöngur. Með loftslagsbreytingum er mikilvægt að geta nýtt sér samgöngumáta aðra en einkabílinn. Samfelld og þétt byggð styður við umhverfisvæna þróun. Hún gerir það að verkum að fleira fólk býr á minna svæði sem styrkir þjónustu og styttir vegalengdir. Með styttri vegalengdum er auðveldara að notast við vistvænar samgöngur svo sem hjóla eða ganga. Það er ekki aðeins umhverfisvænt heldur bætir lífsgæði fólks. Bæði styrkir það líkamlegt hreysti fólks og einnig hefur náttúran góð áhrif á andlega heilsu fólks. Gott skipulag getur haft góð áhrif á fólk.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Valdís Vilmarsdóttir 1995-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/33491
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/33491