Back to results

Agricultural University of Iceland

Áhrif beitar á líffræðilegan fjölbreytileika gróðurs í fjallabyggðum Evrópu Tenging við íslenskar aðstæður

Abstract

dc:description.abstract

Gróður í fjallabyggðum Evrópu hafa mótast af landnýtingu, þar sem hálf-náttúruleg tegundarík vistkerfi hafa myndast. Gróðurbelti í fjallabyggðum Evrópu eru skilgreind eftir staðsetningu skógarmarka sem eru: fjallabelti, lág alpísktbelti, há alpísktbelti og nivalbelti. Áhrif beitar á líffræðilega fjölbreytni er breytileg og hafa margir mismunandi þættir áhrif. Með genaralized grazing líkaninu (GGM) er hægt að spá fyrir um áhrif beitar á líffræðilega fjölbreytni útfrá lengd beitarsögu og raka svæðis. GGM líkanið er byggt á rannsóknum á láglendi. Aðstæður á alpískum svæðum eru öðruvísi. Lífmyndir planta eru öðruvísi, langlífi og hægur vöxtur er algengari, vaxtartímabilið styttra og svæðin eru einangraðri. Vegna einangrunar er mikið af einlendum tegundum á alpískum svæðum og breytileiki milli svæða mikill. Breytt landnýting er helsta ógn við líffræðilega fjölbreytni. Aðalform landnýtingar í fjallabyggðum Evrópu er hirðmennska. Vegna minnkandi arðsemi hafa hirðingjar annað hvort fært sig yfir í ræktun, eða svæði verið yfirgefin. Túnræktun fylgir aukin áburðarnotkun sem eykur uppskeru svæða, en veldur einnig einsleitni. Á þeim svæðum sem hafa verið yfirgefin hefur útbreiðsla kjarrs og skóglendis aukist. Aukin útbreiðsla tegunda sem eru algeng á láglendi inn á hálendari svæði getur leitt til staðbundinnar aukningar á líffræðilegri fjölbreytni. Sú staðbundna aukning þarf þó ekki að leiða til aukinnar líffræðilegrar fjölbreytni á heimsvísu, ef hún leiðir til fækkunar á tegundum sem eru einungis bundin við hálendi. Þróun landbúnaðar á Íslandi stefnir í svipaða átt og Evrópu. Við getum nýtt okkur upplýsingar um þróun vistkerfa í Evrópu sem vísbendingu um í hvaða átt þróun getur orðið á Íslandi. Aukin útbreiðsla kjarrs og skóglendis á Íslandi og aukin gróðurhula getur verið góð þróun. Áherslu þarf þó að leggja á viðhald líffræðilegrar fjölbreytni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ólafur Arason 1989-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/33487
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/33487

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
related terms
citation

Ólafur Arason 1989-. Áhrif beitar á líffræðilegan fjölbreytileika gróðurs í fjallabyggðum Evrópu Tenging við íslenskar aðstæður. 2019. http://hdl.handle.net/1946/33487