Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi er bæði heimildaritgerð og rannsókn í senn og fjallar um fjölmenningu í barnabókum sem ætlaðar eru börnum á leikskólaaldri. Markmið ritgerðarinnar var að svara þremur rannsóknarspurningum; Hvaða þýðingu hafa fjölmenningarlegar barnabækur í nútíma samfélagi? Hverjar eru birtingarmyndir fjölmenningar í barnabókmenntum fyrir börn á leikskólaaldri, sem gefnar voru út á árunum 2000- 2008?; og er munur á barnabókum eftir íslenska og erlenda höfunda hvað varðar sýnileika annarra litarhátta en þess hvíta? Innihald ritgerðarinnar hentar einna helst foreldrum og starfsmönnum uppeldisstofnanna, en þó getur hver sem er haft gagn og gaman að því að glugga í hana. Fræðilegi hluti ritgerðarinnar skiptist í þrjá kafla; Fjölmenning, Barnabókmenntir og Fjölmenning í barnabókmenntum. Þessum kafla er ætlað að svara fyrstu rannsóknarspurningunni, en niðurstöður bentu til að þýðing fjölmenningarlegra bóka væri mikil í nútímasamfélagi, til dæmis í leikskólum þar sem jafnt verður að koma fram við öll börnin. Seinni hluti ritgerðarinnar er rannsóknarhlutinn. Valdar voru hundrað bækur af handahófi í barnadeild Borgarbókasafns Reykjavíkur í ágúst 2009, barnabækur fyrir leikskólabörn sem voru gefnar út á árunum 2000-2008 á Íslandi. Hann skiptist, líkt og sá fræðilegi í þrjá meginhluta; Rannsóknaraðferð, Úrvinnsla gagna og Niðurstöður. Þessi hluti er gerður með það að markmiði að svara rannsóknarspurningum númer tvö og þrjú. Niðurstöður leiddu í ljós að birtingarmyndir í íslenskum barnabókum fyrir börn á leikskólaaldri eru af afar skornum skammti og að erlendir höfundar eru líklegri en íslenskir til að sýna annan litarhátt en hvítan. Að lokum er samantekt og umræða þar sem efni ritgerðarinnar er dregið saman og niðurstöður ræddar. Í lokin verða svo settar fram okkar hugmyndir og þankagangur eftir skrifin.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Guðný Eyþórsdóttir 1981-
- Katrín Sif Ingvarsdóttir 1985-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/9750
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/9750