Back to search

University of Iceland

Námsefni í listasögu fyrir grunnskóla

Abstract

dc:description.abstract

Verkefni þetta er lokaverkefni til B.Ed. gráðu í grunnskólakennarafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands vorið 2011. Meginviðfangsefnið er námsefni í listasögu með áherslu á verklega þætti. Verkefnið skiptist í tvo hluta. Í fyrri hlutanum er greinargerð, þar sem meðal annars er yfirlit yfir það námsefni sem til er í myndmennt á íslensku og það sem fjallar um listasögu. Skoðað er hvernig það námsefni mætir kröfum Aðalnámskrár í verklegri listasögu. Í seinni hlutanum er frumgerð að námsefni. Viðfangsefnið er verklegt námsefni í listasögu sem er unnið út frá listastefnu. Námsefnið er útfært með fjölbreyttum kennsluaðferðum til að mæta þörfum ólíkra nemenda. Það líkan sem var lagt til grundvallar má auðveldlega aðlaga að kennslu í öðrum listastefnum. Námsefninu fylgja leiðbeiningar fyrir kennara, umfjöllun um listastefnu, vinnulýsing fyrir nemendur og matsblað.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sandra Rebekka Dudziak
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9716
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9716

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sandra Rebekka Dudziak. Námsefni í listasögu fyrir grunnskóla. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9716