Back to search

University of Iceland

"Ég og Guð, O Boy!" Þróun guðsmyndar og trúarvitundar kvenkyns guðfræðinema við Háskóla Íslands

Abstract

dc:description.abstract

Fyrirbærafræðileg rannsókn á þróun guðsmyndar og trúarvitundar kvenkyns guðfræðinema við Háskóla Íslands. Tekið var viðtal við sex kvenkyns nemendur til að varpa ljósi á lifaða guðsmynd, lifaða trú og áhrif guðfræðináms á hana. Í fyrsta kafla ritgerðarinnar er hugtakið guðsmynd skoðað, í öðrum kaflanum er farið yfir undirbúning rannsóknarinnar. Í þriðja kaflanum eru kenningar Ana Maria Rizzuto í bók hennar The Birth of a Living God skoðaðar, síðan er farið stuttlega yfir aðrar tengdar rannsóknir sem hafa verið gerðar í kjölfarið. Í fjórða kaflanum er kenningum Ann og Barry Ulanov varpað fram í ljósi rannsókna Rizzuto. Í fimmta kaflanum er aðferðafræðin sem notast er við gagnasöfnun rakin, en notast var við fyirirbærafræðilega nálgun Vancouver skólans í fyrirbærafræði. Í sjötta kaflanum er farið yfir niðurstöður rannsóknarinnar, byggða á greiningalíkönum af viðtölunum sex. Í sjöunda kaflanum er umfjöllun um niðurstöður og lokaorð. Rannsókninni er ætlað að nýtast á sviði sálgæslu og guðfræðimenntunar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • María G. Gunnlaugsdóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/8450
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/8450

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

María G. Gunnlaugsdóttir 1985-. "Ég og Guð, O Boy!" Þróun guðsmyndar og trúarvitundar kvenkyns guðfræðinema við Háskóla Íslands. 2011. http://hdl.handle.net/1946/8450