Back to search

University of Iceland

Samloðun Sjálfstæðisflokksins, 1961-1988. Áhrif prófkjöra á samloðun þingflokks Sjálfstæðisflokksins

Abstract

dc:description.abstract

Í aðdraganda Alþingiskosninganna sem haldnar voru árið 1971 studdist Sjálfstæðisflokkurinn í fyrsta skipti við prófkjör við val á frambjóðendum flokksins til þings. Prófkjör hafa oft verið talin leiða til minni samloðunar innan stjórnmálaflokka því þau færa vald til útnefningar á frambjóðendum frá flokksstofnunum til almennra kjósenda. Tilgangur þessarar rannsóknar var að athuga hvort grundvöllur væri fyrir þessari kenningu með því að skoða samloðun innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins fyrir og eftir upptöku prófkjöra. Aðferðin sem notuð var við rannsóknina fól í sér að skoða hvernig þingmenn Sjálfstæðisflokksins greiddu atkvæði í nafnaköllum á þingi og reikna samloðun innan hans út frá þeim upplýsingum. Þrjár viðurkenndar aðferðir voru notaðar við útreikning á samloðun; Attiná Index, Rice Index og Agreement Index. Til rannsóknar var tímabilið frá 1961 til 1988 en engin prófkjör voru haldin í aðdraganda Alþingiskosninga tíu fyrstu ár þessa tímabils. Eftir upptöku prófkjörs árið 1971 nýtti Sjálfstæðisflokkurinn sér þau í aðdraganda fimm kosninga af þeim sex sem haldnar voru frá 1971-1988. Niðurstaða rannsóknarinnar er sú að prófkjörin hafi ekki verið megin orsakavaldur minnkandi samloðunar innan þingflokks sjálfstæðismanna en gefur jafnframt til kynna að aðrir þættir eins og óánægja með flokksræði, klofningur og valdabarátta innan flokksforystunnar hafi haft mun meiri áhrif á samloðun en prófkjörin ein og sér.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigrún H. Jónsdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/8021
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/8021

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigrún H. Jónsdóttir 1984-. Samloðun Sjálfstæðisflokksins, 1961-1988. Áhrif prófkjöra á samloðun þingflokks Sjálfstæðisflokksins. 2011. http://hdl.handle.net/1946/8021