Back to search

University of Iceland

Bentu í Austur, bentu í Vestur: Samanburður á lífi kvenna í Austur- og Vestur-Þýskalandi

Abstract

dc:description.abstract

Í lok seinni heimsstyrjaldarinnar var Þýskalandi skipt upp í tvö ríki þar sem Vestur-Þýskaland var á valdsvæði Bandaríkjanna en Austur-Þýskaland á valdsvæði Sovétríkjanna. Berlínarmúrinn var reistur í miðri Berlín til að afmarka valdsvæðin og til að hindra flæði fólks frá Austri til Vesturs. Efnahags- og stjórnkerfi ríkjanna voru ólík. Í Austri var ríkjandi sósíalismi en í Vestri kapítalismi. Í ritgerðinni er varpað ljósi á líf kvenna í Þýskalandi á tímum Kalda stríðsins eftir því hvort þær bjuggu í Austur-Þýskalandi eða Vestur-Þýskalandi. Auk þess verður staða þeirra skoðuð eftir að kalda stríðinu lauk og Þýskaland varð sameinað að nýju. Staða þeirra verður skoðuð út frá hinu ríkjandi kynjakerfi og mismunandi stjórnkerfum. Til þess að meta stöðuna er atvinnulíf og fjölskyldulíf sérstaklega skoðað auk annarra tengdra þátta. Niðurstöður ritgerðarinnar leiddu í ljós að staða kvenna í Þýskalandi var mjög ólík eftir því hvoru megin við múrinn þær bjuggu. Sameining Þýskalands virðist einnig hafa bitnað mun verr á Austur-Þjóðverjum og þá sérstaklega konum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ingunn Guðmundsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/8010
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/8010

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ingunn Guðmundsdóttir 1986-. Bentu í Austur, bentu í Vestur: Samanburður á lífi kvenna í Austur- og Vestur-Þýskalandi. 2011. http://hdl.handle.net/1946/8010