Back to search

University of Iceland

Hvatning og endurgjöf

Abstract

dc:description.abstract

Efni þessarar ritgerðar er hvatning og endurgjöf. Fyrirtæki í dag eru flest meðvituð um að frammistaða starfsmanna þeirra er gríðarlega mikilvæg og getur skipt miklu máli þegar kemur að samkeppnisforskoti. Til þess að hámarka frammistöðu starfsmanna verða hvatning og endurgjöf að vera til staðar. Það er undir stjórnendum komið að finna út hvaða þættir hvetja starfsfólkið áfram og fær það til að leggja meira á sig. Í fræðilega hlutanum verður meðal annars litið yfir endurgjöf, upphaf hvatningar og helstu hvatningarkenningar sem settar hafa verið fram. Einnig verður skoðað hvernig fræðimenn telja að best sé að hegða sér við hvatningu og hvernig hvatning getur nýst stjórnendum við breyttar efnahagsaðstæður. Í seinni hlutanum verða tvö fyrirtæki á lyfjainnflutnings-, og dreifingar markaði kynnt og í kjölfar þess greint frá eigindlegri rannsókn sem framkvæmd var á millistjórnendum þessara fyrirtækja og niðurstöður hennar settar í fræðilegt samhengi. Rannsóknarspurningar ritgerðarinnar voru tvær. Sú fyrri er hvort millistjórnendur hafi gert meðvitaðar breytingar á hvatningarhegðun sinni eftir efnahagshrunið 2008. Sú seinni er hvernig þessir millistjórnendur standa að endurgjöf til starfsmanna sinna. Niðurstöður rannsóknarinnar sem gerð var í tengslum við ritgerðina leiddi í ljós að millistjórnendur hafa engar meðvitaðar breytingar gert á hvatningarhegðun sinni til starfsmanna. Einnig kom í ljós að allir þeir millistjórnendur sem rætt var við framkvæmdu að minnsta kosti árleg starfsmannasamtöl sem er vettvangur til endurgjafar á frammistöðu starfsmanna þeirra.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Karen Ósk Gylfadóttir 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/7954
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/7954

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Karen Ósk Gylfadóttir 1988-. Hvatning og endurgjöf. 2011. http://hdl.handle.net/1946/7954