Back to search

University of Iceland

Greining á tólf lykilspurningum vinnustaðagreiningar Gallup og svörum við þeim í útibúum Landsbanka Íslands hf

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur ritgerðar þessarar er að greina tólf lykilspurningar í vinnustaðagreiningu Gallup og rýna í svör við þeim í vinnustaðagreiningu Capacent Gallup fyrir nokkur útibúa Landsbanka Íslands hf á árunum 2005 til 2007. Sögulegur og fræðilegur grunnur spurninganna er rannsakaður. Farið er yfir þróun stjórnunar og vinnusálfræði og helstu kenningar um hvatningu og rætt um starfsánægju og helgun í starfi. Rætt er ítarlega um hverja og eina hinna tólf lykilspurninga og greint frá tilurð þeirra og rannsóknum Gallup á sviði helgunar og styrkleika í starfi. Niðurstöður vinnustaðagreiningar tólf útibúa Landsbanka Íslands á höfuðborgarsvæðinu eru birtar og þær túlkaðar í tilviksrannsókn sem byggir á greiningu gagnanna. Í lokin eru teknar saman niðurstöður um efnið. Ritgerðin er greining á heimildum sem liggja fyrir um efnið og gögnum úr áðurnefndri vinnustaðagreiningu Capacent Gallup. Niðurstaða höfundar er sú, að lykilspurningarnar tólf hvíli á sterkum grunni helstu kenninga um hvatningu, þær séu góð mæling á helgun starfsmanna og henti vel til að gera samanburð á starfseiningum á borð við útibú Landsbankans.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Brynjólfur Ægir Sævarsson 1976-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/7249
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/7249

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Brynjólfur Ægir Sævarsson 1976-. Greining á tólf lykilspurningum vinnustaðagreiningar Gallup og svörum við þeim í útibúum Landsbanka Íslands hf. 2011. http://hdl.handle.net/1946/7249