Back to search

University of Iceland

Heimsókn í ríki Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði : hvers vegna náttúrustíg í Vatnajökulsþjóðgarði?

Abstract

dc:description.abstract

Verkefnið samanstendur af greinargerð og kennsluverkefni. Greinargerðin fjallar um kennsluþætti utan skólastofu, þá fræðinga sem tengja nám við áþreifanlega hluti, forhugmyndir nemenda og tengingu við aðalnámsskrá. Einnig er samantekt um Vatnajökulsþjóðgarð og NEED sem er fjölþjóðlegt samstarfsverkefni, ætlað til að þróa nýjar og frumlegar aðferðir við miðlun þekkingar á friðlýstum svæðum. Kennsluverkefnið er náttúrustígur á suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Kennsluverkefnið inniheldur kennsluleiðbeiningar og verkefnablöð fyrir nemendur. Í leiðbeiningum eru ábendingar um kennsluefni sem tengist hverju viðfangsefni fyrir sig, verkefnum fyrir og eftir ferð auk ítarefnis. Verkefnið er sett í röð eftir staðsetningu stöðva en er hugsað sem verkefnabanki tileinkaður svæðinu milli Hoffellsjökuls og Álftafjarðar. Kennsluverkefnin snerta helst almenna náttúrufræði en einnig er tenging við stærðfræði og sögu. Auðvelt er að heimfæra verkefnin á önnur svæði landsins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Lilja Dögg Björgvinsdóttir
  • Þorbjörg Erla Jensdóttir
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/6958
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/6958

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Lilja Dögg Björgvinsdóttir; Þorbjörg Erla Jensdóttir. Heimsókn í ríki Vatnajökulsþjóðgarðs Suðursvæði : hvers vegna náttúrustíg í Vatnajökulsþjóðgarði?. 2010. http://hdl.handle.net/1946/6958