University of Iceland
Samræmd könnunarpróf í stærðfræði : eru próf 4. bekkjar í samræmi við námsefni og námskrá?
Abstract
dc:description.abstractVerkefni þetta er lagt fram til fullnaðar B.Ed gráðu í grunnskólakennarafræðum við Háskóla Íslands, Menntavísindasvið. Tilgangur verkefnisins var að skoða hvort að einstök prófatriði samræmdra könnunarprófa í stærðfræði í 4. bekk grunnskóla samræmdust Aðalnámskrá grunnskóla annars vegar og námsefni hins vegar. Innihaldsgreining var notuð til að greina þau prófatriði sem meira en 40% nemenda leystu ekki rétt. Einnig var skoðað hvort prófatriðin reyndu á minni, skilning, beitingu, greiningu, nýmyndun/nýsköpun og mat samkvæmt flokkunarkerfi Benjamins Bloom. Helstu niðurstöður leiddu í ljós að samræmi milli samræmdra könnunarprófa í stærðfræði, námskrár og námsefnis var til staðar í einstaka prófatriðum en þó ekki öllum. Markverðast var þó að nokkur prófatriði var hvergi að finna í námsefni fyrsta til fjórða bekkjar grunnskóla.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigríður Jóna Gunnarsdóttir
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/6468
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/6468