Back to search

University of Iceland

Áhrif tveggja útfærslna Beanfee Direct hvatningarkerfis á námsástundun og truflandi hegðun tveggja nemenda á miðstigi í grunnskóla: Bekkjarútfærsla borin saman við bekkjar- og einstaklingsútfærslu Beanfee Direct

Abstract

dc:description.abstract

Þessi rannsókn hafði það markmið að kanna áhrif tveggja útfærslna stafræna hvatningarkerfisins Beanfee Direct á námsástundun og truflandi hegðun í almennum bekk á miðstigi grunnskóla. Annars vegar var skoðuð bekkjarútfærsla kerfisins og hins vegar samhliða notkun bekkjar- og einstaklingsútfærslu. Beanfee Direct byggir á hugmyndafræði hagnýtrar atferlisgreiningar með áherslu á jákvæða styrkingu og skýrar væntingar á sjónrænan hátt. Notast var við einliðasnið með margföldu grunnskeiði yfir aðstæður til að meta orsakatengsl milli íhlutunar og breytinga í hegðun. Þátttakendur voru tveir nemendur í sama bekk sem sýndu slaka námsástundun og truflandi hegðun í kennslustundum. Annar þátttakandinn fékk bæði bekkjar- og einstaklingsútfærslu Beanfee Direct samtímis en hinn eingöngu bekkjarútfærslu. Námsástundun og truflandi hegðun voru mæld í þremur bóklegum námsgreinum fyrir og eftir innleiðingu kerfisins. Niðurstöður sýndu að námsástundun jókst að meðaltali í sumum námsgreinum eftir innleiðingu Beanfee Direct, þó niðurstöður væru breytilegar milli þátttakenda og námsgreina. Hjá öðrum þátttakandanum komu fram skýrari vísbendingar um aukna námsástundun og minni breytileika, sérstaklega í íslensku, en hjá hinum voru breytingar óstöðugri. Truflandi hegðun minnkaði að meðaltali í sumum aðstæðum hjá báðum þátttakendum, einkum í íslensku og stærðfræði, þó niðurstöður væru áfram breytilegar. Í heild benda niðurstöður til þess að Beanfee Direct geti haft jákvæð áhrif á námsástundun og dregið úr truflandi hegðun í ákveðnum aðstæðum. Ekki komu þó fram skýrar vísbendingar um að samhliða notkun bekkjar- og einstaklingsútfærslu hefði meiri áhrif en bekkjarútfærsla ein og sér. Túlkun niðurstaðna takmarkast þó af breytileika í gögnum, fáum mælingum í sumum aðstæðum og smiti milli fasa. Þrátt fyrir það gefa niðurstöðurnar vísbendingar um notagildi Beanfee Direct og undirstrika þörf fyrir frekari rannsóknir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Alfa Bæhrenz Björgvinsdóttir 1996-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53125
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53125

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Alfa Bæhrenz Björgvinsdóttir 1996-. Áhrif tveggja útfærslna Beanfee Direct hvatningarkerfis á námsástundun og truflandi hegðun tveggja nemenda á miðstigi í grunnskóla: Bekkjarútfærsla borin saman við bekkjar- og einstaklingsútfærslu Beanfee Direct. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53125