Back to search

University of Iceland

Framkvæmd Lubbastunda í leikskólum. Forkönnun og þróun matslista fyrir Hljóðasmiðju 1.

Abstract

dc:description.abstract

Málþroski á fyrstu æviárum er ein meginforsenda læsis og lestrarnáms. Í leikskóla skapast mikilvæg tækifæri til að rækta þá færniþætti sem liggja til grundvallar lesskilningi og umskráningu, svo sem orðaforða, málskilning og hljóðkerfisvitund. Efnið Lubbi finnur málbein hefur verið töluvert notað í íslenskum leikskólum í málörvun og undirbúningi fyrir læsi, en lítið hefur verið rannsakað hvernig það er í raun notað í daglegu starfi og áhrif þess ekki metin. Markmið rannsóknarinnar var að kanna framkvæmd Hljóðasmiðju 1 úr efninu Lubbi finnur málbein í íslenskum leikskólum og þróa matslista sem gæti nýst til að lýsa og meta framkvæmd í samræmi við leiðbeiningar handbókar. Rannsóknin var forkönnun með lýsandi rannsóknarsniði. Gögnum var safnað með beinni athugun á 11 leikskóladeildum innan fimm leikskóla á höfuðborgarsvæðinu. Þátttakendur voru 11 umsjónarmenn Lubbastunda og barnahópar þeirra, þar sem meðalaldur barna var 3,9 ár. Rannsakandi fylgdist með einni Lubbastund á hverri deild og fyllti út matslista með 17 tvíkosta atriðum sem byggðu á handbók Hljóðasmiðju 1. Niðurstöður voru unnar með lýsandi tölfræði og tvíkostaprófi fyrir hlutfall með viðmiðunargildi 0,8. Niðurstöður bentu til þess að heildstæð og samræmd framkvæmd Hljóðasmiðju 1 væri takmörkuð, þar sem meðaltal framkvæmdra atriða var 9,1 af 17 mögulegum. Ákveðnir grunnþættir komu þó nær alltaf fram, svo sem að börn heyrðu markhljóð, sáu og endurtóku táknrænar hreyfingar og unnu með markhljóð fremst í orði. Hins vegar komu sjaldan fram atriði sem kröfðust dýpri hljóðgreiningar, svo sem vinna með markhljóð í miðju eða lok orða, rím eða lykilsetningar. Niðurstöðurnar benda til þess að einstakir þættir Hljóðasmiðju 1 séu sýnilegir í framkvæmd leikskóla, en að heildstæð innleiðing efnisins samkvæmt handbók sé breytileg. Rannsóknin veitir þannig innsýn í framkvæmd efnisins og leggur grunn að frekari rannsóknum, þar á meðal þróun og notkun matslista til að meta framkvæmd og kanna í kjölfarið tengsl hennar við árangur.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Selma Dögg Vigfúsdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53120
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53120

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Selma Dögg Vigfúsdóttir 1989-. Framkvæmd Lubbastunda í leikskólum. Forkönnun og þróun matslista fyrir Hljóðasmiðju 1.. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53120