Back to search

University of Iceland

Áhrif skynjunar á hegðun og líðan. Skynvænt rými í námsveri fyrir skynsegin nemendur

Abstract

dc:description.abstract

Í ljósi aukinnar áherslu á inngildandi menntun og vaxandi vitundar um taugafjölbreytileika er mikilvægt að þróa námsumhverfi sem mætir fjölbreyttum þörfum nemenda. Þessi rannsókn fjallar um þróun námsumhverfis og skynvæns rýmis í námsveri fyrir skynsegin nemendur og hvernig slíkar breytingar geta stutt við skynþarfir nemenda innan inngildandi menntakerfis. Tilgangur rannsóknarinnar er að efla þekkingu og skilning á skynjun og skynúrvinnslu og hvernig umhverfið hefur áhrif á hegðun og líðan nemenda. Markmið rannsóknarinnar er að skoða hvaða leiðir ég fer til að mæta skynþörfum nemenda minna en nemendur voru virkir þátttakendur í rannsóknarferlinu ásamt samstarfsfólki. Rannsóknin var framkvæmd sem starfendarannsókn á mínum starfsvettvangi í grunnskóla, skólaárið 2024-2026. Gagna var aflað með fjölbreyttum aðferðum, meðal annars vettvangsheimsóknum, ígrundandi samtölum við fagfólk, athugunum í starfi, rannsóknardagbók og með því að hlusta á raddir og upplifanir nemenda í daglegu skólastarfi. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að aukinn skilningur á skynupplifun nemenda geti haft veruleg áhrif á hvernig kennarar túlka hegðun og bregðast við þörfum nemenda í skólaumhverfinu. Uppsetning skynvæns rýmis í námsveri og breytingar á skipulagi námsumhverfis skapaði aðstæður sem gáfu nemendum tækifæri til að ná jafnvægi, taka hlé frá skynáreytum og örva eða virkja skynkerfin sín eftir þörfum. Rannsóknin byggir jafnframt á réttindum barna til þátttöku og tjáningar og undirstrikar mikilvægi þess að túlka hegðun nemenda í ljósi skynupplifunar þeirra og að hlustað sé á raddir nemenda af virðingu og tekið sé mark á þeirra upplifun. Niðurstöður varpa ljósi á hvernig aðlögun umhverfis getur stuðlað að aukinni vellíðan, þátttöku og öryggi nemenda og styrkt inngildandi starfshætti í skólastarfi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Thelma Rúnarsdóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52988
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52988

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Thelma Rúnarsdóttir 1990-. Áhrif skynjunar á hegðun og líðan. Skynvænt rými í námsveri fyrir skynsegin nemendur. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52988