University of Iceland
„Það hafa allir skoðun á fundum“: Upplifun starfsfólks af gæðum funda á vinnustöðum
Abstract
dc:description.abstractFundir eru órjúfanlegur hluti af starfsemi flestra skipulagsheilda. Þeir taka tíma og pláss í vinnudegi starfsfólks og áhrifa þeirra gætir langt út fyrir fundarherbergið. Fundir geta haft umtalsverð áhrif á rekstur og framgang skipulagsheilda en einnig geta þeir litað starfsánægju og upplifun starfsfólks af álagi og þreytu. Fundir eru ein birtingarmynd menningar á vinnustöðum og gegna hlutverki í að viðhalda henni og móta. Menning á vinnustöðum hefur þannig áhrif á framkvæmd funda og gæði þeirra. Markmið þessarar rannsóknar var að varpa ljósi á hugmyndir starfsfólks á ólíkum vinnustöðum um gæði funda og hvernig þær kallast á við upplifun þess af fundunum. Einnig var leitast við að greina samspil skipulagsheilda og funda, meðal annars með tilliti til menningar og stjórnskipulags. Við framkvæmd rannsóknarinnar var notast við eigindlegar rannsóknaraðferðir þar sem tekin voru átta hálfopin viðtöl við starfsfólk ólíkra vinnustaða og unnið úr gögnum sem söfnuðust með þemagreiningu. Niðurstöður benda til skýrs misræmis milli hugmynda starfsfólks um gæði funda og þess hvernig þeir eru í framkvæmd. Þá gefa niðurstöður til kynna að gæði funda mótist af samspili aðdraganda, framkvæmdar og úrvinnslu en einnig skipulags- og menningarlegum þáttum. Í lok verkefnisins er lagður fram tíu atriða gátlisti um tækifæri til bættra fundagæða. Fræðasvið fundafræða er ungt en hefur farið vaxandi á þessari öld. Fundir hafa þrátt fyrir það lítið verið rannsakaðir á Íslandi og mörg tækifæri sem liggja í frekari rannsóknum á fundum hér á landi. Rannsóknin er þannig framlag til þekkingar á fundum í íslensku samhengi og undirstrikar þörf fyrir frekari rannsóknir á sviðinu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Björn Kristjánsson 1980-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/52966
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/52966