Back to search

University of Iceland

Hvaða efnahagslegu þættir skýra breytingar á fjölda ungs fólks í sveitarfélögum á Íslandi?

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar er að greina hvaða efnahagslegu þættir hafa áhrif á breytingar í hlutfalli ungs fólks í sveitarfélögum á Íslandi. Sérstök áhersla er lögð á að meta áhrif hlutfalls ungs fólks á fyrra tímabili, atvinnuþátttöku, tekna, húsnæðisverðs, fjarlægðar frá Reykjavík og stærðar sveitarfélaga á búsetuval ungs fólks. Notast er við panelgögn fyrir 55 sveitarfélög á tímabilinu 2006–2024, sem spannar 19 ár og veitir þannig heildstæða mynd af þróuninni yfir tíma. Niðurstöður benda til þess að hlutfall ungs fólks á fyrra tímabili hafi neikvæð og tölfræðilega marktæk áhrif á breytingar í hlutfallinu, sem gefur til kynna aðlögun yfir tíma. Atvinnuþátttaka hefur jákvæð og tölfræðilega marktæk áhrif, sem er í samræmi við fyrri rannsóknir þar sem sýnt hefur verið fram á að fólk flytur frekar til svæða með betri atvinnumöguleika. Meðaltekjur og heildarfjöldi íbúa hafa hins vegar neikvæð áhrif. Þetta má að hluta til skýra með því að ungt fólk er oft á fyrri stigum starfsferils síns eða enn í námi og því líklegra til að starfa í störfum sem krefjast minni menntunar og starfsreynslu og eru þar af leiðandi gjarnan lægra launuð. Neikvæð áhrif heildarfjölda íbúa má tengja við breytta aldurssamsetningu þjóðarinnar. Með lækkandi fæðingartíðni og hækkandi lífslíkum hefur hlutfall eldri aldurshópa aukist, sem getur leitt til þess að hlutfall ungs fólks lækkar, jafnvel þótt fjöldi þess aukist í algildum skilningi. Athygli vekur að húsnæðisverð hefur jákvæð og tölfræðilega marktæk áhrif á breytingar í hlutfalli ungs fólks, sem fer gegn hefðbundnum væntingum. Ein möguleg skýring er að húsnæðisverð endurspegli aðdráttarafl svæða fremur en kostnað við búsetu, þar sem hærra verð tengist aukinni eftirspurn vegna þátta á borð við atvinnumöguleika og þjónustu. Þetta er í samræmi við lýsandi greiningu gagna, sem sýnir að sveitarfélög með hátt hlutfall ungs fólks einkennast almennt af meiri atvinnuþátttöku, hærra húsnæðisverði, lægri meðaltekjum og minni íbúafjölda. Að lokum reynist fjarlægð frá Reykjavík ekki hafa tölfræðilega marktæk áhrif.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Valdís Ósk Árnadóttir 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52902
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52902

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Valdís Ósk Árnadóttir 2000-. Hvaða efnahagslegu þættir skýra breytingar á fjölda ungs fólks í sveitarfélögum á Íslandi?. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52902