Back to search

University of Iceland

Að sækja fjármagn og skapa sér rými: Upplifun íslenskra kvenfrumkvöðla af hindrunum í fjármögnun í íslensku atvinnulífi

Abstract

dc:description.abstract

Að stofna fyrirtæki krefst hugmynda, frumkvæðis og þrautseigju, en leiðin frá hugmynd að rekstri ræðst einnig af því hvort frumkvöðlar fá aðgang að fjármagni, upplýsingum og stuðningi þegar mest á reynir. Þrátt fyrir sterka stöðu Íslands í jafnréttisumræðu benda bæði fyrri rannsóknir og reynsla úr atvinnulífi til þess að aðstæður kvenna í frumkvöðlastarfi kunni að vera mótaðar af öðrum þáttum en einungis gæðum viðskiptahugmyndar eða rekstraráætlunar. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á hvernig íslenskir kvenfrumkvöðlar upplifa hindranir í fjármögnun nýrra fyrirtækja í íslensku atvinnulífi. Beitt var eigindlegri rannsóknaraðferð og tekin hálfstöðluð viðtöl við fimm íslenskar konur sem eiga það sameiginlegt að hafa stofnað fyrirtæki, byggt upp rekstur og reynt að afla fjármögnunar á einhverju stigi þess ferils. Gögnin voru greind með þemagreiningu. Niðurstöður sýna að fjármögnunarhindranir birtust ekki aðeins í skorti á fjármagni sem slíku heldur einnig í óskýru aðgengi að upplýsingum, torlesnu stuðningsumhverfi, vægi tengslaneta og mati annarra á trúverðugleika frumkvöðulsins. Þá kom fram að eigið fé, stuðningur fjölskyldu og sjálfsfjármögnun gegndu lykilhlutverki í upphafi rekstrar, á meðan formlegt fjármagn kom oft seint til sögunnar eða alls ekki. Einnig lýstu þátttakendur vanmati, efasemdum og sönnunarbyrði í samskiptum við banka, samstarfsaðila og aðra aðila í rekstrarumhverfinu. Rannsóknin varpar þannig ljósi á hvernig samspil kyns, fjármögnunar og frumkvöðlastarfs mótar reynslu kvenna af því að skapa sér rými í íslensku atvinnulífi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Katrín Anna Karlsdóttir 2003-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52879
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52879

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Katrín Anna Karlsdóttir 2003-. Að sækja fjármagn og skapa sér rými: Upplifun íslenskra kvenfrumkvöðla af hindrunum í fjármögnun í íslensku atvinnulífi. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52879